„Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 21:45 Ágúst var hætt kominn á leið heim úr vinnu. Ágúst Elí Ólafsson var hætt kominn í gær á Miklubraut þar sem hann var á leið heim úr vinnu en trjádrumbi var kastað í rúðuna hans af göngubrú við Skeifuna. Hann segist þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr en biðlar til foreldra um að brýna fyrir börnum sínum hve hættuleg slík uppátæki séu. Hann tilkynnti málið til lögreglu, enda heyrði hann af öðru nýlegu dæmi við sömu brúna. „
Þetta var alveg ótrúlega mikið högg,“ segir Ágúst Elí í samtali við Vísi. „Spýtudrumburinn lendir þarna í kantinum á rúðunni, ég hélt ég hefði keyrt á einhvern gangandi vegfaranda sem hefði stokkið fyrir bílinn, svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum, ég negli niður.“ Auk rúðunnar hafi hliðarspegillinn verið í köku og ljóst að tjónið er töluvert. Ágúst segir mildi að umferðin á einmitt þessum tímapunkti á Miklubrautinni hafi ekki verið það mikil. Enginn hafi verið fyrir aftan hann til að keyra á hann þegar hann snarhemlaði. Maður í bíl fyrir aftan hann hafi einnig stoppað. „Og segir mér að hann hafi séð krakka kasta þessari spýtu, svo lít ég og sé hann hlaupa í burtu hinumegin við brúna inn í Gerðarhverfi. Maður er ótrúlega heppinn, ég hefði alveg getað sveigt á þessum tímapunkti, klesst á annan bíl eða fengið annan bíl hreinlega aftan á mig.“ Ágúst segist oft hafa séð krakka kasta snjóboltum af göngubrúnum yfir Miklubraut.Vísir/Vilhelm Annar sem fékk grjóthnullung inn um rúðuna Ágúst segist keyra þarna um daglega. Hann hafi oft séð krakka kasta niður snjóbolta þarna. Það sé vissulega saklausara en geti reynst stórhættulegt, enda Miklubrautin stofnbraut þar sem hámarkshraði er áttatíu kílómetrar. Hann telur krakkann hafa verið á aldrinum tíu til fjórtán ára. Líklega hafa flestir keyrt undir umrædda brú við Skeifuna. „Svo hringdi ég í bílrúðuskiptafyrirtæki eftir þetta og starfsmaður þar sagði mér eftir að ég útskýrði hvað hafði komið fyrir að þeir hefðu fengið bíl nýlega til sín sem hafi lent í þessu á nákvæmlega sama stað. Sá fékk víst grjót inn um rúðuna hjá sér og mælaborðið brotnaði.“ Hann segist líklega munu hugsa sig tvisvar um næst þegar hann keyri undir göngubrúna. Ljóst sé að foreldrar þurfi að ræða við börn sín um málið en Ágúst hefur látið lögreglu vita.
Lögreglumál Reykjavík Umferð Börn og uppeldi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira