Enginn einn Hlíf Steingrímsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 07:31 Að fá krabbamein getur kollvarpað tilverunni. Það þekkja þeir 1.058 karlmenn sem fá krabbamein á hverju ári og fjölskyldur þeirra. Margir upplifa að þeir missi stjórn á eigin lífi, að minnsta kosti tímabundið, og oft fylgja flóknar tilfinningar á borð við ótta, depurð og jafnvel reiði. Krabbamein hefur ekki bara áhrif á líkamlega heilsu, heldur getur líka haft áhrif á sjálfsmynd, svefn, samskipti og daglegt líf. Þennan veruleika þekkja líka ráðgjafar Krabbameinsfélagsins, sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar sem sérhæfa sig í því að styðja við bakið á fólki og fjölskyldum sem standa frammi fyrir þessu gríðarstóra verkefni. Til viðbótar við alla þeirra fagþekkingu búa þau einnig að því að hafa dýrmæta innsýn inn í reynslu fjölmargra sem hafa fetað þennan veg áður. Með þeirra hjálp getur því reynsla eins orðið öðrum að liði. Hjálpar mikið að þiggja aðstoðina Í Mottumars í ár beinum við athyglinni að mikilvægi stuðnings þegar tekist er á við krabbamein, vegna þess að við teljum að karlmenn geti haft gagn af að nýta meira af þeim stuðningi sem í boði er. Enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs og ef við teygjum fram höndina er næsta víst að okkur verði rétt hjálparhönd. Ekkert kemur í stað samveru með fjölskyldu og vinum og öðrum sem næstir standa en leiðirnar eru ótal margar og mestu skiptir auðvitað að hver og einn finni sína leið. Upplýsingar um gagnlegar leiðir höfum við tekið saman á mottumars.is. Rúmlega 1.400 manns nýttu viðtalsþjónustu félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins á síðasta ári, af þeim voru karlmenn um 30%, rúmlega 400. Í ár viljum við hvetja karlmenn til að nýta þjónustuna í meira mæli. Að deila líðan og reynslu með einhverjum sem við treystum hjálpar oft meira en okkur grunar, hvort sem það er fjölskyldumeðlimur, vinur eða einhver annar. Það er gott að geta sett þær tilfinningar sem við upplifum í orð, við það verða þær oft ekki eins yfirþyrmandi og auðveldara fyrir okkur að horfa á hlutina í víðara samhengi. Fyrsta skrefið getur reynst erfitt, en oft kemur mönnum á óvart hve mikið það hjálpar að þiggja aðstoðina og hve mikill léttir getur fylgt því. Sýnum stuðning – enginn einn Krabbameinsfélagið er 75 ára í ár, félag sem var stofnað af fólkinu í landinu og hefur alla tíð notið ríkulegs stuðnings almennings og fyrirtækja. Fyrir það segjum við takk. Á 75 árum hefur margt áunnist en betur má ef duga skal. Krabbameinsfélagið, ásamt 27 aðildarfélögum sínum, lætur sig allt varða þegar kemur að krabbameinum; stuðning og ráðgjöf við fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra, hagsmunagæslu, forvarnir, fræðslu og krabbameinsrannsóknir. Í Mottumars söfnum við fyrir þessari fjölþættu starfsemi. Stefán Svan Aðalheiðarson, hönnuður Mottumarssokkanna í ár, var valinn úr stórum hópi fólks sem sendi inn tillögur að sokkum fyrir vitundarvakninguna í ár. Með því að klæðast sokkunum “berum við skilaboð þakklætis áfram”, eins og Stefán orðar það, en litríkir sokkarnir og gróskumiklar motturnar sem eru ómissandi þáttur í Mottumars gegna líka öðru mjög mikilvægu hlutverki. Með því að skarta sokkum og mottum sýnum við með bókstaflegum hætti að við styðjum við bakið á öllum þeim karlmönnum sem hafa fengið krabbamein og fjölskyldum þeirra. Við styðjum við bakið á vinum, fjölskyldumeðlimum, vinnufélögum og kunningjum. Um leið og við segjum “takk fyrir” sendum við þeim skýr skilaboð um að við sem samfélag stöndum með þeim - það er enginn einn. Höfundur er formaður Krabbameinsfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlíf Steingrímsdóttir Krabbamein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar