Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 23. febrúar 2026 13:02 Slökkviliðið barðist við gróðurelda nærri Elliðavatni í gær. Vísir/Vilhelm Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um gróðureldana á fjórða tímanum í gær. Brynjar Þór Friðriksson, settur sviðsstjóri á aðgerðasviði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir að allt tiltækt slökkvilið hafi verið kallað út. Flókið hafi verið að komast að svæðinu sem sé nokkuð langt og þá hafi mikill vindur gert slökkviliðsmönnum erfitt fyrir. „Það var alveg þó nokkur fjöldi sem kom að þessu hjá okkur. Þetta er náttúrulega þannig svæði að það er torsótt og við komum slökkvibílunum ekkert að alls staðar og þurftum að leggja langar lagnir frá þeim og láta þá dæla meðfram línunni og nota hana.“ Eldurinn náði að læsa sig í kofa á svæðinu. „Það var einhver lítill kofi sem er þarna í austurendanum á þessu sem brann. Það var annar bústaður þarna, sem sagt norðanvert við svæðið sem brann, sem að slapp alveg.“ Óttast var um tíma að eldurinn myndi breiðast alla leið að Guðmundarlundi. „Það fór hellings vinna í bara að reyna að koma í veg fyrir að hann kæmist þangað inn.“ Slökkvistarfi lauk um áttaleytið í gærkvöldi. Nokkuð stórt svæði brann eða um 32 hektarar. Ekki er vitað nákvæmlega hvar upptök eldsins voru né hver þau voru. „Þetta getur verið hvað sem er. Eitthvert glerbrot sem að speglar í sólinni eða einhvers konar bara vangaveltur um að þetta séu íkveikjur eða hvað sem er. Við getum ekkert sagt til um það.“ Hann segir sinu að finna víða á suðvesturhorni landsins eftir mikla þurrka og frost undanfarið. Þrátt fyrir að rignt hafi í morgun sé þurrt veður fram undan. „Það verður ábyggilega fram á vor þó nokkur hætta á sinu. Bara biðja fólk að fara varlega með eld og bara láta okkur vita strax ef það sér til sinu af því að það skiptir okkur máli að koma strax í hana og geta slökkt hana.“
Gróðureldar Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar í Heiðmörk Vatnsvernd í Heiðmörk Heiðmörk Slökkvilið Reykjavík Kópavogur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira