Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Jakob Bjarnar skrifar 18. febrúar 2026 15:08 Þingfundur hófst á því að Jón Gunnarsson baðst afsökunar á orðum sínum sem snéru að Ragnari Þór Ingólfssyni. vísir/vilhelm Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra.
Jón líkti Ragnari við ótíndan götustrák og spurði hvaðan þetta fyrirbæri hefði eiginlega komið inn á þingið? Nú sér hann eftir orðum sínum en Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, gaf 13. þingmanni Suðvesturkjördæmis, Jóni Gunnarssyni, orðið við upphaf þingfunds: „Eins og við þekkjum öll getur hitnað í kolunum hér í þingsal þegar umræður verða heitar. Það gerðist svo sannarlega í gær að mér hitnaði í hamsi, af gefnu tilefni. Og viðhafði hér orð í þingsal sem er ekki boðlegt að fari hér fram í þessum þingsal eða ræðustól. Ég vil biðjast velvirðingar á því, gagnvart þinginu og þeim ráðherra sem ég beindi orðum mínum til,“ sagði Jón. Læti á þinginu í gær Á þinginu í gær var tekist á um umdeilt mál sem varðar almannatryggingar og beintengingu þeirra við launaþróun. Sigríður Á. Andersen þingflokksformaður Miðflokksins hafði þjarmað að Ragnari sem svaraði henni fullum hálsi og sagði eitthvað á þá leið að þeir sem gagnrýnt hafa frumvarpið, sem nú er statt milli annarrar og þriðju umræðu, hefðu aldrei tekið upp hanskann fyrir aldraða og öryrkja. „Mér blöskrar þessi málflutningur hæstvirts ráðherra í garð allra þeirra sem hafa talað og get upplýst hæstvirtan ráðherra um það að sú sem hér stendur og örugglega allir þeir, flestir þeir, sem hafa gagnrýnt þetta mál hafa tekið upp málstað öryrkja og eldri borgara mun lengur heldur en hæstvirtur ráðherra hefur gert í opinberri umræðu og frábið mér þennan málflutning,“ sagði Sigríður. Vísir greindi fyrr í dag og ítarlega frá umræðunni allri og ummælum Jóns sem kostuðu hann vítur af hálfu Hildar Sverrisdóttur varaforseta alþingis. Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing? Jón gekk nefnilega skrefinu lengra en Sigríður: „Maður getur ekki orða bundist yfir framkomu hæstvirts félags- og húsnæðismálaráðherra hér áðan í þessari umræðu. Það er eins og ótíndur götustrákur sé hér á ferð en ekki ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Hvernig málfarið var, hvernig skilaboðin voru um að menn standi vörð um hina ríku. Þetta er auðvitað algerlega galinn og óboðlegur málflutningur,“ sagði Jón þá og bætti um betur: „En það eru bara allir asnar og vitleysingar og hagsmunagæsluaðilar fyrir einhverja ríka í landinu að mati hæstvirts félags- og húsnæðismálaráðherra. Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing? Jú, úr verkalýðshreyfingunni. Hann kom úr verkalýðshreyfingu og hann talar með þessum hætti til fólks í stærstu stjórnmálaflokkum landsins. Þetta er auðvitað algerlega óboðlegt og forseti á náttúrulega að ávíta ráðherra og þingmenn sem tala með þessum hætti til annarra hér í salnum,“ sagði Jón. En nú sem sagt iðrast hann orða sinna.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Fleiri fréttir „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Sjá meira