Er Reykjavík virkilega dreifð? Gögn segja annað Finnur Hrafn Jónsson skrifar 14. febrúar 2026 14:31 Í umræðunni um skipulag og þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu hefur lengi verið haldið fram að Reykjavík sé miklu dreifðari en sambærilegar borgir í nágrannalöndum. Þessi fullyrðing hefur jafnvel verið notuð sem rök fyrir stórum breytingum á skipulagi og samgöngum. En þegar rýnt er í alþjóðleg gögn kemur í ljós að þessi forsenda stenst ekki. Villandi samanburður hefur afbakað umræðuna Oft er miðað við lögsögumörk borga þegar þéttleiki er reiknaður. Það er óraunhæft, sérstaklega í Reykjavík þar sem stór svæði innan borgarmarka eru óbyggð. Einnig er algengt að bera Reykjavík saman við stórborgir sem eru margfalt stærri og með miklu þéttari miðjur. Slíkur samanburður er mjög villandi. Ef bera á Reykjavík saman við aðrar borgir þarf að miða við sambærilega stórar borgir og nota alþjóðlega samræmd viðmið. GHSL: hlutlaus og áreiðanleg mæling á þéttbýli GHSL gagnasafnið (Global Human Settlement Layer) er þróað af Framkvæmdastjórn ESB. Byggt er á viðamikilli úrvinnslu á Landsat gervihnattamyndum og lýðfræðilegum gögnum frá öllum löndum heims. Notað er DECURBA viðmið Sameinuðu þjóðanna þar sem þéttleiki byggðar er skilgreindur á sama hátt í öllum löndum. Samkvæmt þessum gögnum er þéttleiki byggðar á höfuðborgarsvæðinu 2.133 íbúar á ferkílómetra. Reykjavík er í meðallagi þétt borg Þegar Reykjavík er borin saman við borgir í Norður-Evrópu og Norður-Ameríku með 100–300 þúsund íbúa kemur í ljós að: Reykjavík er aðeins dreifðari en meðaltal sambærilegra borga Reykjavík er svipuð borgum eins og Tampere, Halifax og Óðinsvé Reykjavík er þéttari en meðalborgir í Noregi, Finnlandi og Írlandi Reykjavík er þéttari en flestar bandarískar borgir af svipaðri stærð Þegar litið er á vegið meðaltal þéttleika borga í 12 nágrannalöndum er Ísland í miðjum hóp. Fullyrðingin um „óvenju dreifða Reykjavík“ á sér enga stoð Gögnin sýna að Reykjavík er hvorki óvenju dreifð né óvenju þétt. Hún er einfaldlega nálægt meðallagi þéttbyggð borg miðað við stærð sína og landfræðilega stöðu. Það er því ekki rétt að byggja skipulagsstefnu á þeirri hugmynd að Reykjavík sé eitthvert frávik í alþjóðlegum samanburði. Ef markmiðið er að bæta samgöngur, draga úr útþenslu eða styrkja borgarformið, þá þarf að ræða þau markmið á eigin forsendum, ekki á mýtu um að Reykjavík sé „óeðlilega dreifð“. Gögnin eru öllum aðgengileg Hægt er að skoða GHSL gögnin myndrænt á: https://luminocity3d.org/WorldPopDen https://human-settlement.emergency.copernicus.eu/ucdb2024visual.php Þar má sjá þéttleika byggðar í þúsundum borga um allan heim og bera saman á samræmdan og hlutlausan hátt. Meðfylgjandi gröf eru unnin upp úr þessum gögnum. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Byggðamál Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar