Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Snædís Valsdóttir og Aðalsteinn Hjartarson skrifa 4. júní 2026 08:15 Er sífelld neikvæð umræða um skólakerfi líkleg til að bæta ástand þess? Í sálfræði er þekkt fyrirbæri sem kallast sannleiksblekking (e. illusory truth effect). Það lýsir því hvernig fullyrðingar sem eru endurteknar aftur og aftur fara smám saman að hljóma eins og sannleikur, jafnvel þótt þær séu ekki endilega studdar af staðreyndum. Kunnugleiki verður að sannleika. Undanfarin ár hefur samfélagsumræða um íslenskt skólakerfi sífellt meira borið þessi einkenni. Hin ýmsu ráð og hópar senda frá sér hverja gagnrýnisskýrsluna og/eða greinina á fætur annarri sem sumar standast ekki skoðun nema að litlu leyti. Oft er gagnrýnin sett fram með afgerandi hætti og beinist helst að kennurum, skólastjórnendum, starfsfólki skóla og kerfinu sjálfu. Við heyrum og lesum endurteknar fullyrðingar um að skólakerfið sé í rúst. Að árangur sé óásættanlegur. Að kennarar standi sig ekki nógu vel. Að stjórnendur ráði ekki við verkefnið. Að námsmat sé óskiljanlegt. Að kerfið sé í vanda. Aftur og aftur eru birtar fyrirsagnir sem draga upp dökka mynd af skólastarfi landsins. Starfsfólk skóla fer varla út á meðal fólks án þess að fá spurninguna um það hvað eigi að gera til að bjarga þessari rúst. Hinn nýi „sannleikur” samfélagsins brýst í gegn í umræðunni. Auðvitað má og á að ræða áskoranir. Enginn heldur því fram að allt sé fullkomið. En þegar nær öll umfjöllun snýst um það sem miður fer, þegar gagnrýni verður ráðandi tónn og þegar jákvæðar sögur, framfarir og faglegt starf fá lítið rými, vaknar spurningin: Hvaða mynd er verið að skapa og af hverju? Skóli er ekki abstrakt kerfi á blaði. Skóli er ótrúlega flókið samfélag fólks, skemmtilegur en flókinn vinnustaður eins og margra barna heimili verður oft. Hann er annað heimili barnanna okkar stóran hluta ársins. Hann er vinnustaður þúsunda einstaklinga sem mæta á hverjum degi og reyna af heilindum, fagmennsku og umhyggju að sinna mikilvægu samfélagslegu hlutverki, að undirbúa börnin okkar undir störf og líf í heimi sem mun líta allt öðruvísi út á morgun en heimurinn okkar í dag. Stöldrum aðeins við og veltum fyrir okkur hvaða áhrif neikvæð umræða hefur: Hvaða áhrif hefur það á börnin okkar sem heyra aftur og aftur að skólinn þeirra sé ekki nógu góður, hann sé í vanda? Hvaða áhrif hefur það á foreldra nemendanna , þegar sífellt er verið að tala neikvætt um skólann og skólakerfið í heild sinni? Hvaða áhrif hefur það á vinnustaði þegar sífellt er talað um þá sem vandamál? Hvaða áhrif hefur það á kennaranema og annað ungt fólk sem veltir fyrir sér starfsframa sínum þegar sífellt er talað um skólastarf sem misheppnað fyrirbæri? Hvaða áhrif hefur þessi neikvæða umræða á það sem allt byggir á, traust okkar til hvers annars og til samfélagsins? Hvað gerist ef við förum að trúa því að eitt mikilvægasta samfélagsverkefni okkar, skólinn, sé fyrst og fremst saga um mistök og misbresti? Veltum aðeins fyrir okkur ábyrgð fjölmiðla: Það vekur athygli þegar fjölmiðlar halda úti sérstökum efnisflokkum undir heitum á borð við „Skólakerfi í vanda“. Af hverju er þessi fyrirsögn notuð? Af hverju er ekki efnisflokkur sem ber heitið „Fagmennska í skólum“, „Góðir skólar“ eða „Gerum gott betra“? Af hverju fer ekki meira fyrir umfjöllun sem leitast við að skoða bæði áskoranir sem og styrkleika? Orð skipta máli. Fyrirsagnir skipta máli. Endurtekningar skipta máli. Markmið fjölmiðla á auðvitað ekki að vera að fegra veruleikann. En markmið þeirra ætti heldur ekki að vera að skapa þá tilfinningu að ekkert virki, að enginn standi sig og að framtíðin sé vonlaus. Slík umræða getur orðið sjálfuppfyllandi spádómur (e. self fulfilling prophecy). Hún mun grafa undan trausti nemenda og foreldra þeirra, faglegri sjálfsmynd og áhuga fólks á að starfa í skólum til lengri tíma litið. Áskorun til okkar allra Stöðug neikvæð umræða er líkleg til að grafa undan því trausti sem ríkja þarf á milli skóla og samfélagsins og mun aldrei vera til umbóta! Við viljum því skora á okkur öll, samfélagið í heild sinni; hjálpumst að við að efla jákvæða umræðu um skólastarf, tölum skólakerfið upp, bætum það sem þarf að bæta með lausnamiðri nálgun og forðumst að setja mesta athyglina á neikvæða umræðu. Eflum traust í samfélaginu, stöndum saman í því að skapa bjarta framtíð fyrir börnin okkar. Eflum jákvæða umræðu sem vonandi verður sjálfuppfyllandi spádómur um enn öflugri skóla og skólamenningu! Höfundar eru stjórnendur í grunnskóla í Reykjavík. Snædís Valsdóttir, skólastjóri Vogaskóla. Aðalsteinn Hjartarson, aðstoðarskólastjóri Vogaskóla Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar