ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 3. júní 2026 12:46 Við vitum alveg af hverju hægrið á Íslandi vill halda þjóðinni utan ESB. Við sáum það í umræðunni um veiðigjöldin. Þar voru sömu flokkar, enn og aftur, að berjast fyrir hagsmunum sama fólks. Sama mynstur sést líka í fréttum síðustu vikna og mánaða. Greining Visku sýnir að Ísland er nú orðið dýrasta land í heimi. Verðlag hér mælist 84% hærra en að meðaltali í Evrópu og á það líka við þegar tekið er tillit til launa. Nýleg landamærakönnun sýnir síðan að rúm 18% erlendra ferðamanna töldu Íslandsferðina ekki peninganna virði. Það þýðir ekki að aðeins 18% hafi fundið fyrir verðlaginu. Það þýðir að 18% voru komin alla leið yfir í það að sjá eftir peningunum. Á sama tíma er eignarhald útgerðar á óskyldum atvinnurekstri orðið stórt samfélagsmál og ástandið á fasteignamarkaði er hrikalegt — og virðist bara geta versnað. Við sjáum þetta líka í vaxtakjörunum. Á Íslandi greiða heimilin vexti sem hafa bein áhrif á húsnæðiskostnað, leiguverð og verðlag í landinu. Á meðan íslensk heimili berjast við eitt dýrasta vaxtaumhverfi Evrópu er umræðunni samt oft stillt upp eins og það sé þjóðhagslegt smáatriði hvort almenningur fái að skoða raunverulegan samanburð við Evrópu. Þarna eru mörkin skýr. Verið er að berjast fyrir fákeppni. Verið er að berjast hart gegn því að almenningur fái smjörþefinn af því hvað það gæti þýtt fyrir Ísland að ganga í ESB. Og verið er að berjast fyrir óbreyttu ástandi, þrátt fyrir að síðustu alþingiskosningar hafi sýnt skýran vilja þjóðarinnar: að nú skyldu sérhagsmunir fárra settir til hliðar og almenningur settur í forgang. En það er annar hópur stjórnmálafólks sem berst líka hart gegn ESB. Ekki bara gegn inngöngu, heldur gegn því að almenningur fái yfirhöfuð að sjá hvað er í boði. Það er okkar ysta vinstri. Ég er sjálfur svolítið í vinstri búbblu á Facebook og hef því fengið að sjá rök — eða öllu heldur „ekki-rök“ — margra vina minna gegn ESB. Mynstrið er yfirleitt það sama: Geopólitík, gömul hugmyndafræði og ákveðin óskhyggja — en ekki beinir hagsmunir almennings. Ysta vinstrið telur sig geta umbreytt íslensku samfélagi til hins betra, brotið upp ofurveldi útgerðarmanna og sérhagsmuna og byggt hér upp réttlátara samfélag. Ég deili þeirri von að miklu leyti. En þá þarf líka að horfast í augu við raunveruleikann. Vinstri stjórnir eru mjög fátíðar á Íslandi. Frá lýðveldisstofnun hafa hægri- og miðjuflokkar yfirleitt ráðið ferðinni, og í síðustu sveitarstjórnarkosningum varð sterk hægrisveifla. Á meðan beðið er eftir „byltingunni“ situr almenningur áfram uppi með okurverðlag, háa vexti, fákeppni og húsnæðismarkað sem vinnur gegn venjulegu fólki. Skoðanir þessa góða fólks virðast þannig trompa allan mögulegan ávinning almennings af ESB-aðild. Í raun kemur ekki einu sinni til greina að skoða hvað gæti verið í boði, því fyrir fram eru sterkar skoðanir látnar ráða niðurstöðunni. Þá er talað um allt hitt: — heimsvaldarstefnu, átök og valdablokkir. — þjóðarmorð Ísraels á Palestínumönnum, eins og það séu sjálfkrafa rök gegn því að íslenskur almenningur fái að kjósa um ESB. — nýfrjálshyggju ESB, eins og við höfum ekki nóg af slíku hér heima. — erlent auðvald, sjálfstæði og fullveldi, eins og ESB-ríkin séu ekki sjálfstæð ríki í dag. Og svo er auðvitað sameiginlegt uppáhald ysta hægrisins og ysta vinstrisins: „Báknið“ sem ESB á að vera. En þá má spyrja: Er ekki líklegt að heilbrigt aðhald, skýrari reglur og faglegri stjórnsýsluviðmið úr 450 milljóna manna evrópsku samstarfi geti hjálpað 400 þúsund manna samfélagi, þar sem valda- og fjármálastéttirnar eru of oft fastar í frændhygli, tengslaneti og sérhagsmunum? Því það er einmitt vandinn. Á Íslandi búum við ekki við það heilbrigða valdajafnvægi sem við viljum gjarnan trúa. Við sjáum það í verðlagi á gott sem öllu og þeirri gríðarlegu fákeppni sem hér ríkir. Við sjáum það líka í því að frá lýðveldisstofnun hafa sömu stjórnmálaöfl yfirleitt ráðið för. Það eru einmitt þeir flokkar sem berjast hvað harðast gegn ESB, gegn samanburðinum við Evrópu og gegn því að almenningur fái að sjá hvað er í boði. Þess vegna er ESB-umræðan ekki bara spurning um hægri eða vinstri. Hún er spurning um hvort almenningur eigi að fá raunverulegt val. Hægrið vill ekki að þjóðin sjái hvað er í boði, því það óttast að sérhagsmunakerfið veikist. En hluti vinstrisins virðist heldur ekki vilja að þjóðin sjái hvað er í boði, því þar ræður óskhyggjan enn of miklu. Þar mætast þessir tveir hópar, þó þeir komi úr ólíkum áttum. Annars vegar þeir sem verja kerfið vegna þess að þeir græða á því. Hins vegar þeir sem hafna breytingum vegna þess að þær passa ekki við heimsmynd sem varð til á allt öðrum tíma. En almenningur á ekki að þurfa að borga verðið fyrir úreltar skoðanir annarra. Við eigum að fá að vita hvað stendur okkur til boða. Við eigum að fá að sjá samning. Við eigum að fá að ræða kosti og galla af einhverri alvöru. Og að lokum á þjóðin sjálf að fá að ákveða. Það er lágmarkið. Ef ESB-aðild er svona slæm hugmynd, þá ættu andstæðingar hennar ekki að óttast þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að samningur liggur fyrir. En ef fólk berst gegn því að almenningur fái einu sinni að sjá hvað er í boði, þá er það ekki sterk afstaða gegn ESB aðild. Það er ótti við upplýsta ákvörðun þjóðarinnar. Höfundur er starfrænn hönnuður og áhugamaður um réttlát samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun