Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. febrúar 2026 15:25 Mennirnir voru fljótir inn og út. Tveir menn brutust inn á hárgreiðslustofu í Seljahverfi í Reykjavík í nótt og höfðu á brott með sér tölvu og rakvélar. Þeir flúðu vettvang á rafmagnshlaupahjólum. Eigandi segir aðkomuna í morgun að stofunni hafa verið ljóta. „
Við sjáum það á öryggismyndavél að innbrotið er tvær mínútur yfir fimm í nótt. Þá mæta þeir hérna fyrir utan hjá okkur, kasta tveimur steinum inn, koma inn, taka dót og fara út. Ætli þetta hafi ekki tekið svona þrjátíu sekúndur,“ segir Lúkas Ísfeld einn eigenda hárgreiðslustofunnar Studio 109 í samtali við Vísi. „Þeir tóku tölvuna okkar og ruku svo rakleiðis í vöruhilluna og tóku þar fimm rakvélar sem við höfum til sölu,“ segir Lúkas. Hann segir ljóst að tjónið hlaupi á hundruðum þúsunda. Augljóst sé að mennirnir hafi verið búnir að kanna vettvang áður en þeir mættu á staðinn. Skrítið að mæta til vinnu í morgun Sigrún Kristín Jónsdóttir lögreglufulltrúi staðfestir við Vísi að lögregla hafi verið kölluð á vettvang í morgun vegna málsins. Innbrotið sé til rannsóknar. DV greindi fyrst frá málinu. Lúkas segir eigendur nú kanna hvort mennirnir hafi sést á Ring myndavélum í nágrenninu. Aðkoman hafi ekki verið fögur í morgun. „Það var helvíti skrítið að mæta til vinnu í morgun. Rispaður spegill hjá okkur í þokkabót þar sem steinninn hefur lent og allt náttúrulega í glerbroti. Þetta skilar sér svo í viðbótar tekjutapi fyrir okkur enda gátum við ekki afgreitt kúnna í morgun fyrr en við höfðum gengið frá og tekið til svona um ellefuleytið, enda allt í glerbrotum.“ Eigendur Studio 109 á hárgreiðslustofunni góðu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira