Þegar skilvirknisjónarmið vega að réttaröryggi Þorsteinn Siglaugsson skrifar 8. febrúar 2026 12:02 Nýlega varð ég vitni að samtali þar sem háttsettur embættismaður lýsti því hvernig undirmaður hefði notað gervigreindarlíkan til að svara erindi málsaðila. Aðili málsins veitti því strax athygli að svarið byggði á úreltum lagabókstaf og var því rangt. Ég sé ekki ástæðu til að greina frá því hér um hvaða embætti var að ræða, enda er aðeins um eitt dæmi að ræða sem ég varð áskynja um fyrir tilviljun. En mig grunar að atvikum af þessu tagi fari hratt fjölgandi. Stjórnsýslan er ekki verksmiðja Innleiðing gervigreindar í stjórnsýslu er gjarna kynnt sem skynsamleg leið til að taka á málahala, auka afköst og bæta þjónustu. Það er skiljanlegt. Álag er mikið, kröfur um hraða afgreiðslu vaxa og fjármunir eru takmarkaðir. En það veldur mér sívaxandi áhyggjum að árangurinn verði í reynd fyrst og fremst mældur í mínútum og fjölda afgreiddra mála, en gæði, lögmæti og réttaröryggi sitji á hakanum. Stjórnsýslan er ekki verksmiðja. Hún er kerfi þar sem teknar eru ákvarðanir sem geta haft djúpstæð áhrif á fólk, réttindi þess, skyldur og stöðu. Þar skiptir ekki bara máli að svar komi fljótt, heldur að það sé rétt, nægjanlega rökstutt, byggt á gildandi rétti og í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar. Ef gervigreind verður aðeins tæki til að auka skilvirkni og hraða erum við ekki að bæta stjórnsýsluna heldur grafa undan henni. Vandinn breiðist hratt út Rótin að þessu liggur annars vegar í áherslunni á sparnað og skilvirkni og hins vegar í því hvernig gervigreind er almennt notuð. Þekking á virkni hennar, getu og takmörkunum er gjarna alls ekki til staðar, en svörin eru trúverðug og sannfærandi. Atvikið sem ég rek í upphafi greinarinnar sýnir glöggt hvernig farið getur. Í öðru tilfelli sem ég þekki þurftu lögfræðingar hjá opinberri stofnun að veita aðila álit á grunni reglugerðar. Meðan álitsins var beðið lét aðilinn gervigreind gera tillögu að áliti og sendi hana lögfræðingunum. Þeir brugðust við og sögðu álit gervigreindarinnar hljóma trúverðugt og gerðu að sínu, að því er virtist án þess að rýna sjálfir í reglugerðina. Nýlega las ég svo ákvörðun opinbers eftirlitsaðila með stjórnsýslu þar sem sjá má sterkar vísbendingar um að gervigreind hafi verið notuð til að vinna hraðsoðna úrlausn í stað þess að höfundur greindi gögn málsins til hlítar sjálfur. Atvik af þessu tagi eru ekki smávægileg. Því í stjórnsýslu getur röng greining haft keðjuverkandi áhrif. Hún mótar væntingar borgarans, setur málsmeðferð í rangan farveg, getur dregið úr líkum á að fólk neyti andmælaréttar síns, og getur leitt af sér ranga ákvörðun sem erfitt getur orðið að vinda ofan af síðar. Það sem gervigreind gerir mögulegt; að framleiða sannfærandi texta á fáeinum sekúndum; gerir það líka mögulegt að framleiða sannfærandi rangfærslur á jafnskömmum tíma. Hættan á hæfnitapi er raunveruleg Einnig blasir við önnur en ekki síður alvarleg hætta til lengri tíma, en það er svonefnt hæfnitap (e. skill erosion). Ef starfsmenn venjast því að fá „svar“ frá gervigreind í stað þess að setja sig inn í mál, lesa heimildir og vega og meta, þá dofnar fagleg dómgreind, þekkingu verður síður haldið við, þess í stað tekur hún að tapast. Skýringin er líffræðileg: Heilinn býr yfir taugamótanleika (e. neuroplasticity) og taugatengingar styrkjast eða veikjast eftir því hvað við fáumst við. Færni sem byggir á endurteknum athöfnum - eins og að lesa frumheimildir, bera saman sjónarmið, draga ályktanir og rökstyðja niðurstöðu - verður til og viðhelst með endurtekningu. Þegar slík vinna er síendurtekið færð út fyrir hugann og yfir til gervigreindar minnkar sú vitræna áreynsla sem viðheldur taugatengingunum, og þá getur færnin rýrnað hratt. Smám saman getur sjálfstæð lagaleg greining orðið að formsatriði, hún er gerð sjaldnar, með yfirborðslegri hætti, og að lokum jafnvel alls ekki. Verði þróunin í þessa átt er það sérlega varhugavert, ekki síst þar sem stjórnsýslan glímir nú þegar við skort á þekkingu á og virðingu fyrir stjórnsýslureglum og lögum ásamt veikleikum í málsmeðferð. Ef gervigreind er notuð sem hækja í slíku umhverfi, getur hún magnað upp veikleikana í stað þess að bæta úr þeim. Réttarríkið í húfi Röng notkun gervigreindar er sérstaklega varhugaverð þegar um er að ræða embætti sem hafa ríkar valdheimildir, þar sem kröfur um lagastoð, meðalhóf, jafnræði og vandaðan rökstuðning eru undirstaða réttlátrar málsmeðferðar. Í slíkum málum er ekki nóg að eitthvert svar berist málsaðila. Það verður að vera rétt svar. Geta gervigreindar til að spinna upp trúverðugan texta gæti svo aukið enn á vandann verði hún notuð til að reyna að réttlæta rangar ákvarðanir með sannfærandi hætti, en eins og reynslan sýnir og stutt er rannsóknum getur sannfæringarkraftur gervigreindar verið mjög mikill. Ég hef áhyggjur af því að stjórnsýslan kunni að nálgast þetta viðfangsefni af of miklu skeytingarleysi og vanþekkingu á hættunum sem til staðar eru. Við tölum um hagræðingu og tækniframfarir og einblínum á tækifæri til sparnaðar í opinbera kerfinu. En síður er rætt um þær alvarlegu afleiðingar sem mistök og skeytingarleysi í stjórnsýslunni hafa og sem röng notkun tækninnar getur magnað upp. Rétt notkun gervigreindar getur orðið til þess að bæta málsmeðferð og auka réttaröryggi, til dæmis ef hún er notuð til að leita uppi galla í ákvörðunum eða rökfærslum, leita eftir sjónarmiðum sem kunna að fara framhjá viðkomandi sérfræðingi, aðstoða við leit í gagnagrunnum og margvísleg önnur verkefni. En sé markmiðið með notkun hennar það eitt að auka skilvirkni og hraða afgreiðslu mála í sparnaðarskyni getum við endað með því að skipta út réttaröryggi fyrir skammtímaskilvirkni. Og þá er sjálft réttarríkið í húfi. Höfundur er hagfræðingur og sérfræðingur í hagnýtingu gervigreindar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Siglaugsson Gervigreind Mest lesið Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann Skoðun Halldór 06.06.26. Halldór Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Sjá meira
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun