Fara í aðgerðir fáist ekki svör Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. febrúar 2026 16:47 Sólveig Anna og Halldóra ræddu málin í Sprengisandi. Bylgjan Leikskólastjóri í Reykjavík og formaður Eflingar segja skýrt að fáist ekki svör frá borgaryfirvöldum um hvernig eigi að bæta starfsemi leikskóla fyrir lok mánaðar verði farið í einhvers konar aðgerðir. Mönnunarvandinn og álagið sem fylgi starfinu leiði til þess að fagfólk leiti annað. „
Við höfum verið rosa þæg í langan tíma og trúað því sem er sagt, að það sé vilji fyrir hendi til að gera eitthvað. Þetta er ekkert nýtt mál, þetta er búið að vera erfitt í mörg ár, frá því að stytting vinnuviku var komið á,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á leikskóla í Reykjavík, en hún ræddi leikskólamálin ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í Sprengisandi í morgun. Í byrjun febrúar skrifuðu 62 leikskólastjórar bréf til borgarstjóra og -yfirvalda þar sem þeir lýstu yfir verulegum áhyggjum af stöðu leikskóla borgarinnar og kröfðust aðgerða. Þeir sögðust ekki treysta sér að bera ábyrgð á þeirri stöðu sem er uppi. Þá lýstu þeir yfir vonbrigðum með að ákveðið hafi verið að fresta gildistöku Reykjavíkurleiðarinnar. Í kjölfarið sagði Líf Magneudóttir, formaður stýrihóps um leikskólaleiðina og oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, að stýrihópur sem tekur saman tillögur úr samráði um Reykjavíkurleiðina skili niðurstöðum í febrúar. Boða aðgerðir Bæði Sólveig Anna og Halldóra segja að ef borgaryfirvöld bregðist ekki við fyrir lok febrúarmánaðar muni leikskólakennarar fara í einhvers konar aðgerðir. „Ég elska vinnuna mína. Ég er búin að vera í öllum störfum í þessum sama skóla í 26 ár. Mér líður eins og kerfið sé að molna innan frá. Það er svo mikil útþynning, við værum fleiri fagmenn inni í skólunum,“ segir Halldóra. „Auðvitað munum við finna eitthvað sem við munum þá gera öll. En ég heyri að sumir séu að hugsa um hvort þeir geti yfirhöfuð haldið áfram.“ Sólveig setur einnig þann fyrirvara að það verði að vera nægilega góðar aðgerðir sem yfirvöld leggja til til þess að ekki verði leitað í aðgerðir. „Við munum grípa til aðgerða ef þetta kemur ekki í gegn, ef þetta er eitthvað útvatnað drasl. Við munum kalla Eflingarfólkið á fund og fara þar yfir stöðuna og við munum grípa til aðgerða. Við ætlum ekki að sitja undir því að þetta ruglástand haldi áfram og þú segist ætla að bulla í fólki og draga það svo til baka,“ segir Sólveig Anna. Þreytt á að einblína á hvort hægt sé að hafa opið í stað skólastarfsins sjálfs Halldóra tekur sérstaklega fram áhrif styttingar vinnuvikunnar en eftir að vinnuskylda leikskólastarfsmanna fór úr fjörutíu tímum í 36 tíma hefur þeim ekki verið heimilt að ráða inn aukastöðugildi. „Við erum að halda leikskólanum opnum alla daga, hátt í níu tíma og börnin eru með hámark 42,5 klukkustundir. Þetta er ekkert erfitt reikningsdæmi, það er auðvelt að sjá að það er mjög erfitt að koma þessu heim og saman. Við erum orðin rosalega þreytt á því að hefja hvern einasta morgun og hugsa ekki hvernig skólastarfið okkar eigi að vera heldur hvernig við eigum að hafa opið í dag,“ segir hún. Sólveig segir að Efling hafi bent á í samningaviðræðum að stytting vinnuvikunnar gæti haft áhrif á starfsemi leikskólanna. „Þetta eru ekki geimvísindi. Við erum með börn sem mega vera 42,5 tíma á viku. Við erum með starfsfólk sem er allt með 36 stunda vinnuviku og nú er það alls staðar. Til þess að láta þetta ganga upp þá þarf að finna leið með hvötum til þess að reyna að gera það að verkum að það séu ekki eiginlega öll börn alltaf svona lengi. Það myndi létta rosalega á,“ segir hún. „En auðvitað tókum við þessu eins og aðrir í samningunum en sögðum við samningaborðið „þetta mun aldrei ganga upp. Kerfið er að hruni komið“. „Aumingja fólkið“ Leikskólakennarar eru almennt ánægðir með Reykjavíkurleiðina þar sem foreldrar geta fengið 25 prósenta afslátt á leikskólagjöldin sé barnið sótt klukkan 14 eða fyrr á föstudögum, maímánuður er ókeypis ef engir skráningardagar eru nýttir en greiða þarf fjögur þúsund krónur fyrir hvern nýtan skráningardag. Skráningardagar eru um tíu til ellefu á ári. Halldóra minnir á að með innleiðingu Reykjavíkurleiðarinnar sé ekki verið að skerða opnunartímana. „Það er ekki skerðing um eina einustu mínútu í opnun. VIð gætum bara, ég hef sagt það en ég veit ég tala ekki fyrir alla, en ég gæti alveg hugsað mér að hafa opið frá sjö eða hálf átta ef ég hefði mönnunina,“ segir hún. Sólveig segir meðlimi Eflingar, samkvæmt könnun sem var framkvæmd á þeirra vegum, helst hafa áhyggjur af mönnun og álagi í starfinu. Leikskólastarfsmenn með mikla reynslu segi ástandið aldrei hafa verið jafn slæmt og þar spili mikil starfsmannavelta inn í. „Þetta snýst um öryggi vegna þess að þegar þú kemur í vinnuna á morgnana og það fyrsta sem þú gerir er að skoða fjarveruna og svo þarftu að fara púsla á deildirnar og svo veistu að á einhverjum tímapunkti þarftu að taka þetta erfiða símtal. Það er ekki auðvelt að hringja í vinnandi fólk og biðja það um að koma og sækja barnið sitt. Þú reynir að láta hlutina ganga upp. En það er ekki bara há veikindatíðni heldur gríðarlega mikil umskipti á ófaglærða fólkinu. Starfsmannavelta er hátt í þrjátíu prósent sums staðar,“ segir Sólveig Hún bætir við að í næstum hverri viku hitti hún faglærða starfsmenn sem séu farnir að leita sér að öðrum störfum eða jafnvel að fara í starfsendurhæfingu. Halldóra segist þekkja til leikskólakennara sem vilji færa sig í önnur skólastig eða starfa hjá öðru sveitarfélagi. „Aumingja foreldrarnir, aumingja barnið og aumingja fólkið sem vinnur þarna.“
Leikskólar Skóla- og menntamál Sprengisandur Bylgjan Reykjavík Stéttarfélög Borgarstjórn Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent