„Er ekki bara best að hætta þessu fiskeldi?” Halla Hrund Logadóttir skrifar 7. febrúar 2026 09:04 „Er ekki bara best að hætta þessu fiskeldi?“ spurði gamall vinur mig á förnum vegi. Spurningin er skiljanleg. Áhrif starfseminnar hafa verið umdeild og stjórnmálamenn hafa verið tregir til að setja henni skýra umgjörð, þrátt fyrir umtalsverða verðmætasköpun og jákvæð byggðaáhrif. Löggjöf þarf að vera í takt við metnað fólks Ég hef upplifað jákvæð byggðaáhrif í beinni. Á ferðum mínum vestur hitti ég fjölskylduföður sem flutti aftur heim á Bíldudal þegar starfsemin hófst. Umsvif í þjónustu jukust og hagur margra sem höfðu setið fastir í verðlausum húsum vænkaðist. Fyrirtæki spruttu upp til að þjónusta greinina og sköpuðu enn fleiri störf. Líf færðist í sofandi bæi sem tóku að blómstra. Á Ísafirði hitti ég ungan stjórnanda fiskeldisfyrirtækis sem augljóslega ann samfélagi sínu af heilum hug og geislaði af metnaði þegar hann sýndi mér nýjungar í tækni og innleiðingu sem miða að því að efla heilbrigði fiska í kvíum. Þegar ég var orkumálastjóri kynntist ég öðrum frumkvöðli, frá Bolungarvík, sem leiddi orkuskipti í fóðurprömmum laxeldis með hvötum sem stjórnvöld sköpuðu og dró þar með úr mengun. Allt er þetta framúrskarandi fólk sem vill samfélagi sínu og þjóð það besta. Metnaðurinn er því til staðar í samfélögunum. Umsvif, nýsköpun og ábyrgðartilfinning fólksins eru augljós. Aftur á móti er fyrirhuguð lagaumgjörð um fiskeldi enn of metnaðarlaus ef horft er til heildarhagsmuna landsins. Hún skapar ekki nægjanlega djarfa hvata til að ýta greininni á hærra plan. Við eigum að gera þá kröfu að Ísland sé framúrskarandi á þessu sviði. Það er eina rétta leiðin. Hverjir tapa á metnaðarlausri löggjöf? Þrátt fyrir miklar tekjur fyrir þjóðarbúið og byggðir landsins eru margir sem verða undir ef við innleiðum of metnaðarlausa löggjöf. ●Bændur um allt land eiga mikið undir hlunnindum af ám og hafa byggt upp mikilvæga tekjustofna af laxveiði. Þar er villti laxinn aðdráttarafl fyrir vel borgandi ferðamenn sem skilja eftir sig ríflegan ágóða í gegnum fjölbreytta hágæðaþjónustu án massatúrisma. Stangveiði er jafnframt hluti af menningu landsins sem birtist best í samverustundum íslenskra fjölskyldna og vinahópa við árbakka yfir sumartímann um allt land. Okkur þykir vænt um árnar okkar og viljum tryggja þessi gæði fyrir börn okkar og barnabörn. Gerum ekki lítið úr þessu vægi. Við vitum í hjarta okkar að þessi lífsgæði eru hluti af því sem við elskum við Ísland, jafnvel þótt fjárhagslegur ábati sé ólíkur. ●Byggðarlög og fyrirtæki með sjókvíaeldi tapa einnig þegar greinin þarf stöðugt að lifa við óöryggi um framtíð sína þrátt fyrir himinháar fjárfestingar, vegna pólitískra átaka og deilna. Slíkt ástand er hvorki farsælt né friðsælt. Vestfirðir einir og sér eru dæmi um landshluta þar sem aðstæður eru krefjandi: veður er óblítt, vegir hlykkjóttir og raforkukerfi veikburða. Samt er dugur fólks allsráðandi, eins og sókn fjórðungsins ber með sér. Þess vegna þarf að leiða deilur um fiskeldi til lykta með metnaðarfullri löggjöf sem miðar að sátt, ekki með því að ýfa þær upp. ●Við Íslendingar allir töpum einnig þegar langvarandi skaði á náttúru felur í sér kostnað sem ekki er tekinn með í Excel-skjöl um hagkvæmni. Það á við mengun og álag á vistkerfi. Ísland er meðal fárra landa í Evrópu sem enn búa yfir sjálfbærum villtum laxastofnum. Talið er að aðeins um 50.000 laxar séu eftir. Á sama tíma búa um þrjátíu milljónir norskra eldislaxa í sjókvíum. Við berum sameiginlega ábyrgð á því að ákvarðanir okkar í dag ógni ekki íslenskum laxastofnum til framtíðar. Við þekkjum öll sögu geirfuglsins. Slíka skömm viljum við ekki endurupplifa, jafnvel þótt skammtímaábati geti verið mikill. Við eigum að vera mannlegri og framsýnni fyrir komandi kynslóðir. Nýsköpunin Til að svo megi vera er áhersla á bestu mögulegu tækni í sjókvíaeldi lykilatriði, samhliða öflugu eftirliti, vöktun og skýrari viðurlögum. Í núverandi frumvarpsdrögum er jákvætt að sjá að starfandi fyrirtæki sem vilja framleiða meira magn en leyfi þeirra heimila hafa hvata til að ráðast í mikilvæga nýsköpun, svo sem að nýta geldan fisk eða færa sig yfir í lokaðar sjókvíar. Hins vegar eru hvatarnir til að ýta núverandi leyfðri starfsemi, sem er langstærstur hluti greinarinnar, eða um 90 prósent af framleiðsluheimild Íslands samkvæmt núverandi áhættumati, yfir í nýrri og öruggari búnað allt of rýrir. Raunar eru þeir svo veikir að þeir virðast styðja stöðnun fremur en umbætur í grein sem getur tvöfaldast innan núverandi leyfa, með aukinni áhættu í för með sér. Góð löggjöf á að gera það hagkvæmt fyrir fyrirtæki að fjárfesta í besta mögulega búnaði hverju sinni, innan gildistíma leyfa, bæði með sterkan hvata í gjaldtöku til hins opinbera og með skýrum kostnaði þegar farið er út fyrir mörkin. Vissulega er öll ný tækni ekki samkeppnishæf í dag en á 16 ára starfsleyfistíma mun margt breytast og löggjöfin þarf að vera hönnuð þannig að hún breytist með, því löggjöf sem festir stöðnun í sessi er ekki hlutlaus heldur áhættusöm. Ábati til þjóðar Ábati af nýtingu náttúruauðlinda er ekki aukaatriði í umræðu um fiskeldi heldur forsenda sáttar. Ábati birtist vissulega í gjaldeyristekjum og jákvæðum byggðaáhrifum en auðlindagjöld skipta þar einnig sköpum. Án skýrrar og trúverðugrar gjaldtöku er ekki raunhæft að ætlast til þess að samfélagið sætti sig við þá áhættu sem starfsemin felur í sér. Í frumvarpsdrögunum er hins vegar allt of óljóst hvernig gjaldtöku á að háttað og hvernig komið verði í veg fyrir að móðurfélög eða aðrir hlutar virðiskeðjunnar lágmarki þann ábata sem fellur til innanlands, líkt og reynslan í Noregi sýnir að geti gerst. Slík óvissa grefur undan trausti og eykur ágreining. Ríkisstjórnin þarf því að geta lagt fram skýra, gagnsæja og sannfærandi útreikninga um það hverju er áætlað að greinin skili til samfélagsins í heild. Samhliða þessu ætti Ísland að stofna auðlindasjóð eða þjóðarsjóð að fyrirmynd Norðmanna. Í slíkan sjóð rynni hluti gjalda frá fiskeldi og öðrum auðlindagreinum, svo sem orku, og yrði hann nýttur til fjölbreyttrar fjárfestingar og sem varasjóður til framtíðar. Slíkur sjóður er ekki aðeins efnahagslegt tæki, heldur leið til að tryggja að arður af nýtingu sameiginlegra gæða renni til þjóðarinnar allrar, einnig til þeirra kynslóða sem taka ekki þátt í ákvarðanatökunni í dag. Erlent eignarhald fiskeldisfyrirtækja Í frumvarpið vantar skýra framtíðarsýn um eignarhald fyrirtækjanna í greininni. Í dag starfa þar stór erlend félög og erlend fjárfesting var eðlilega nauðsynleg til að koma af stað stórum og fjárfrekum verkefnum. Nú þegar greinin er orðin þroskaðri ættu hins vegar sömu skilyrði að gilda um sjókvíaeldi og um önnur sjávarútvegsfyrirtæki, að meirihluti eignarhalds sé í íslenskri eigu. Stýring og eignarhald náttúruauðlinda er ekki aðeins efnahagslegt álitaefni heldur einnig þjóðaröryggismál í heimi þar sem samkeppni um auðlindir eykst hvert sem litið er. Skýr stefna um eignarhald er því forsenda þess að tryggja bæði langtímahagsmuni samfélagsins og trausta umgjörð um greinina. Án skýrrar stefnu um eignarhald er raunveruleg hætta á að stjórn, arður og ábyrgð við nýtingu íslenskra náttúruauðlinda færist smám saman úr landi. Það er ekki farsæl leið að fela slíka ábyrgð aðilum sem hafa hvorki samfélagslegar rætur né langtímahagsmuni hér á landi. Gætum auðlinda okkar Í samhengi eignarhalds auðlinda er einnig þörf á að staldra við laxahlutann sem skilgreindur er í frumvarpinu á svipaðan hátt og aflahlutdeild sem má framselja og veðsetja. Hér virðist um varhugaverða óvissuferð að ræða. Óvissuferð sem hófst þegar leyfum var úthlutað kostnaðarlaust í upphafi, sem stuðningur við nýja atvinnugrein, en nú er tekin ákvörðun um að festa í sessi. Jákvætt er að laxahlutinn er bundinn við landsvæði og mun því styðja atvinnuuppbyggingu innan þeirra. Hins vegar er erfitt að sjá annað en að laxahlutanum sé ráðstafað í reynd ótímabundið svo lengi sem fyrirtæki halda rekstrarleyfum sínum. Um endurnýjun leyfa hefur ráðherra víðtækt vald samkvæmt frumvarpinu í gegnum reglugerð. Hugsunin um að styðja við langtímanýtingu er þó að sumu leyti jákvæð, þar sem hún dregur úr hvötum til áherslu fyrirtækja á skammtímahagnað á kostnað ábyrgðar, fjárfestingar og gæðastarfs. Það breytir þó ekki því að útfærslan þarfnast frekari rýni. Þetta samspil laxahlutar og rekstrarleyfa kallar einnig á dýpri umræðu í samhengi við eignarrétt. Athygli vekur að nálgunin á eignarrétt líkist þeirri sem sett var fram í lögum um stjórn fiskveiða árið 1990 sem hefur verið umdeild allt síðan. Vissulega þarf umgjörð atvinnugreina að vera stöðug og leyfi til nýtingar nægilega trygg til að laða að fjárfestingar í alþjóðlegri samkeppni og byggja upp innviði og störf. Samhliða því verðum við þó að fara varlega í ráðstöfun takmarkaðra íslenskra gæða. Úthlutun laxahluta virðist jafnframt fela í sér mismunun milli fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem þegar starfa í greininni fá úthlutaðan laxahlut kostnaðarlaust, líkt og fyrri leyfi voru veitt án útboðs. Aðrir sem vilja hefja starfsemi þurfa hins vegar að kaupa aðgang í gegnum uppboð. Fyrirkomulagið virðist því ekki einungis fela í sér langtímaráðstöfun verðmæta án nægjanlegra skýrra hvata til nýsköpunar, heldur einnig skapa aðgangshindranir sem draga úr samkeppni. Að lokum Spurningin „er ekki bara best að hætta þessu fiskeldi?“ er skiljanleg í ljósi deilna og óvissu. En spurningin er hvort við ætlum að sætta okkur við of metnaðarlausa umgjörð sem hvorki verndar náttúruna né skapar sátt, eða hvort við treystum okkur til að gera betur. Fiskeldi er hér til að vera. Áskorunin er að tryggja að það þróist með ábyrgð, metnað og langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Þar verðum við að vanda okkur, fyrir byggðirnar, fyrir náttúruna og fyrir komandi kynslóðir. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halla Hrund Logadóttir Landeldi Sjókvíaeldi Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Sjá meira
„
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun