Varðhundar verðbólgunnar Hilmar Harðarson skrifar 6. febrúar 2026 12:31 Verðbólgan hefur verið viðvarandi á Íslandi undanfarin ár. Verkalýðshreyfingin reyndi að rjúfa þann vítahring vorið 2024 með því að skrifa undir hófsamar launahækkanir í þeirri von að fyrirtækin og hið opinbera myndu ganga í takti. Það virðist hafa verið draumsýn. Stórfyrirtækin og hið opinbera, aðilar sem hefðu átt að ganga á undan með góðu fordæmi, hafa þvert á móti haldið verðbólgunni uppi með ótímabærum verð- og gjaldskrárhækkunum. Að óbreyttu stefnir í að forsendur kjarasamninga verði brostnar í haust þegar til endurskoðunar kemur. Forsendurnar miða við 4,7% en verðbólgan er nú skriðin aftur upp fyrir 5%. Þá er ljóst hvert stefnir. Veitur sem eru í opinberri eigu hafa hækkað fastagjald hitaveitu um tæplega 50% á einu ári. Hækkun á notkunargjaldi hitaveitu og fastagjaldi rafmagns hefur hvort um sig hækkað um rétt liðlega 10%. Þessar hækkanir renna beint inn í verðbólguna. Hækkanir vörugjalda um áramótin höggva í sama knérunn og fyrirhugaðar breytingar Reykjavíkurborgar á leikskólagjöldum virðast ætla að hafa sömu áhrif. Í könnun sem FIT gerði meðal eigin félagsfólks kemur skýrt fram að fólk sér fram á hækkun leikskólagjalda við þessar breytingar. Stórfyrirtæki maka krókinn En ábyrgðin liggur ekki eingöngu hjá hinu opinbera. Stórfyrirtæki landsins hafa einnig lagt sitt af mörkum – því miður í öfuga átt. Olíufélögin hafa aukið álagningu sína á dropanum og látið hjá líða að skila lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu til neytenda. Á sama tíma hafa stórar verslunarkeðjur, til dæmis Hagar (sem eiga Skeljung) og Festi (sem eiga N1) tilkynnt um frábæra afkomu á síðasta ári. Fyrirtækin sem selja heimilunum í landinu nauðsynjavörur hafa ekki skilað styrkingu krónunnar til neytenda í formi lægra vöruverðs, eins og eðlilegt væri. Bankarnir, flestir í opinberri eigu, maka krókinn sem aldrei fyrr. Það er alveg ljóst að tíminn er senn á þrotum og útlit er fyrir að kjarasamningar bresti í haust. Verðbólgan virðist vera á uppleið og varðhundar hennar láta engan bilbug á sér finna. Launafólk getur ekki til lengdar setið eftir án launahækkana sem halda í við verðlag. Því miður blasir við að launafólk þarf að fara með aðra nálgun inn í næstu kjaraviðræður. Verkalýðshreyfingin getur ekki ein og sér axlað ábyrgðina á stöðugleika í efnahagslífinu. Stjórnvöld og stjórnendur stórfyrirtækja verða að opna augun. Raunverð fasteigna tvöfaldast Eins og ég hef áður fjallað um hefur OECD sýnt fram á að húsnæðisverð á Íslandi hefur hækkað langt umfram bæði byggingakostnað. Raunverð fasteigna hefur nær tvöfaldast frá 2015, sem er miklu meira en í samanburðarlöndum. Þrátt fyrir að nú hafi aðeins hægt á verðhækkunum er íbúðaverð enn fullþanið þegar horft er til kaupmáttar og getu ungs fólks til að komast inn á fasteignamarkaðinn. OECD benti í fyrra á að þessi þróun væri ekki sjálfbær og að stjórnvöld yrðu að bregðast við með því að auka framboð húsnæðis á viðráðanlegu verði og auka aðgengi að byggingarlóðum. Það er ekki eftir neinu að bíða. Höfundur er formaður Samiðnar - landssambands iðnfélaga á Íslandi og formaður FIT - félags iðn- og tæknigreina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hilmar Harðarson Verðlag Mest lesið Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Sjá meira