Handbolti

Út­skrifast úr Verzló og heldur út í at­vinnu­mennsku: „Rétt skref fyrir mig“

Aron Guðmundsson skrifar
Baldur Fritz Bjarnason hefur slegið í gegn í Olís deildinni með liði ÍR og raðað inn mörkum. Hann hefur þurft að bíða með atvinnumannadrauminn til þessa en nú er fyrsta skrefið á þeim ferli ákveðið.
Baldur Fritz Bjarnason hefur slegið í gegn í Olís deildinni með liði ÍR og raðað inn mörkum. Hann hefur þurft að bíða með atvinnumannadrauminn til þessa en nú er fyrsta skrefið á þeim ferli ákveðið. Vísir/Anton Brink

Baldur Fritz, einn mest spennandi hand­bolta­maður Ís­lands um þessar mundir og markakóngur síðasta tíma­bils í efstu deild hér heima, er á leið út í at­vinnu­mennskuna eftir yfir­standandi tíma­bil. Draumur að rætast sem Baldur þurfti að bíða með þar til að hann út­skrifaðist úr Verzluna­skóla Ís­lands.

Hinn nítján ára Baldur er marka­hæsti leik­maður Olís deildarinnar um þessar mundir með 143 mörk í sex­tán leikjum og það þrátt fyrir að lið hans ÍR vermi botns­æti deildarinnar.

Eftir tíma­bilið heldur hann út í at­vinnu­mennskuna til Svíþjóðar þar sem hann hefur samið við topp­lið Kristian­stad til næstu tveggja ára.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu og er búinn að vinna hart að þessu í langan tíma. Þetta er klár­lega mikilvægt og rétt skref fyrir mig á þessum tíma ferilsins,“ segir Baldur í sam­tali við íþrótta­deild Sýnar. „Þetta er náttúru­lega risastór klúbbur í Svíþjóð, þeir eru að berjast í Evrópu­keppni svo fíla ég hvernig þeir vilja vinna með ungum leik­mönnum, þeir vilja gefa þeim tækifæri, gera þá góða og svo er aðstaðan þarna í heimsklassa.“

Reynst Íslendingum vel

Það skildi engan undra að fleiri lið hafi verið á höttunum eftir Baldri en í hans huga var Kristian­stad, sem vermir toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir, alltaf fyrsti kostur. Á sama tíma samdi Eyjamaðurinn Andri Er­lings­son við félagið og fyrir er þar Einar Bragi Aðal­steins­son sem gekk í raðir Kristian­stad frá FH árið 2024.

Andri og Baldur hafa spilað saman í yngri landsliðum Íslands og taka nú báðir skrefið út í atvinnumennskuna. Hér er Andri í landsleik gegn Spánverjum. IHF

Þá er saga Ís­lendinga hjá félaginu rík, lands­liðs­menn á borð við Teit Örn Einars­son, Arnar Frey Arnars­son og Ólafur Guð­munds­son hafa verið á mála hjá Kristian­stad og í kjölfarið tekið skrefið í stærri deildir í Evrópu.

„Strákarnir sem hafa verið þarna hjá Kristian­stad áður hafa komið mjög vel út úr þessu. Þeir hafa verið að standa sig vel þarna og lítur út fyrir að skref þeirra til Kristian­stad á sínum tíma hafi reynst mjög vel fyrir þá.“

„Fyrst og fremst held ég að það sé ótrú­lega mikilvægt fyrir mig að fara núna út. Sér­stak­lega því þá get ég bara ein­beitt mér að því að vera hand­bolta­maður, líf mitt snýst þá bara um að verða eins góður og ég get verið í hand­bolta í staðin fyrir að vera í skóla eða annarri vinnu með. Ég ætla vera með fulla ein­beitingu á þessu næstu tvö ár, ein­beita mér hundrað pró­sent að Kristian­stad, gera eins vel og ég get, verða eins góður og ég get.“

ÍR er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í efstu deild og er búið að tryggja sér sæti í úr­slita­helgi bikar­keppninnar og njóta krafta Baldurs þar. Strákurinn ungi ein­setti sér á sínum tíma að klára fram­halds­skólagöngu sína í Verzlunar­skóla Ís­lands áður en at­vinnu­manna­ferillinn tæki við.

Er þetta að ganga eftir? Ertu að fara ná öllum prófum og út­skrifast?

„Já það er engin hætta á ferðum þar. Þetta mun klárast í maí, ég er pottþéttur á því að ég muni ná þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×