Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 10:47 Sigríður Björk Guðjónsdóttir er fyrrverandi ríkislögreglustjóri. vísir/vilhelm Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tilkynningar um svikasímtöl þar sem gervigreind er notuð til búa til rödd og kynnir sig sem Sigríði Björk, fyrrverandi ríkislögreglustjóri.
Í tilkynningu frá lögreglunnu segir að alla jafna sé hringt úr leyninúmeri. Röddin sem á að vera Sigríður Björk segist vera hringja vegna alvarlegs afbrots og spurt er hvort viðkomandi hafi þegar greitt sekt vegna málsins. Um er að ræða svikasímtöl, ekki persónuleg símtöl frá Sigríði Björk eða lögreglunni. Tekið er fram að lögreglan innheimtir ekki sektir í gegnum síma. „Það er góð regla að gefa aldrei upp kortanúmer í gegnum síma og heimila ekki rafræna auðkenningu nema þú sért sjálf/ur/t að verki,“ segir í tilkynningunni. Þeir sem telja sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessa er bent á að hafa samband við sinn viðskiptabanka og tilkynna málið til lögreglu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem slíkir svikarar þykjast vera Sigríður Björk. Töluvert var um svikapósta um tíma merktir lögreglu, ríkislögreglustjóra eða ríkissaksóknara. Þá voru send með skjöl í viðhengi þar sem einstaklingarnir voru sagðir hafa framið glæp og var gert að greiða sekt. Sigríður Björk hefur tjáð sig um málið á Facebook þar sem hún tekur fram að áðurnefnd símtöl séu ekki frá henni heldur svikahrappar. Hún tekur fram að um margra ára skeið hafi óprúttnir aðilar sent svikabréf í hennar nafni en bréfin hafi verið sett fram á ótrúverðugan hátt og því lítil hætta að viðtakendur falli í gryfjuna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Lögreglumál Gervigreind Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira