Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2026 08:30 Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mun ásamt öðrum í peningastefnunefnd gera grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar á fréttamannafundi klukkan 9:30. Vísir/Vilhelm Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtunum óbreyttum og verða þeir því áfram 7,25 prósent.
Greint er frá ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans í yfirlýsingu sem birt var klukkan 8:30. Greiningaraðilar höfðu ýmist spáð því að nefndin myndi halda stýrivöxtunum óbreyttum eða þá hækka þá um 25 punkta. Í yfirlýsingunni segir að verðbólga mælist nú 5,2 prósent og hafi aukist á ný. „Þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum eru verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði. Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að halda vöxtum bankans óbreyttum. Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2,5% markmið bankans. Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni. Næsti vaxtaákvörðunardagur peningastefnunefndar er 18. mars næstkomandi. Vefútsending klukkan 9:30 Blaðamannafundur hefst klukkan 9:30 þar sem gerð verður grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar. Þar munu Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri sviðs hagfræði- og peningastefnu gera grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.
Seðlabankinn Verðlag Íslenska krónan Efnahagsmál Fjármál heimilisins Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira