Átta mínútur sem stýra RÚV Daníel Rúnarsson skrifar 3. febrúar 2026 18:02 Ríkisútvarpið gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Það er fjölmiðill í almannaþágu, fjármagnaður með ríkisframlagi og ætlað að þjóna lýðræði, menningu og íslenskri tungu. Samhliða þessu hlutverki starfar RÚV þó á auglýsingamarkaði, í beinni samkeppni við einkarekna fjölmiðla sem njóta hvorki sambærilegs öryggis né fjármögnunar frá ríkinu nema að litlu leyti. Þessi tvíþætta staða skapar vaxandi vandamál sem orðið er tímabært að ræða af alvöru. Sala auglýsinga er ekki jaðarþáttur í starfsemi RÚV heldur gegnsýrir stofnunina í æ ríkari mæli. Áhrifin sjást skýrt í dagskrárgerð. Vinsælar sjónvarpsútsendingar eru teygðar langt umfram eðlilegt form — yfir eina, jafnvel tvær klukkustundir — ekki vegna ritstjórnarlegrar nauðsynjar heldur til að skapa rými fyrir auglýsingar. Reglur um hámark átta mínútur af auglýsingum á klukkustund, sem ætlað var að tryggja hófsemi, eru í reynd farnar að stýra formi og lengd dagskrárefnis. Dagskráin aðlagast auglýsingunum, en ekki öfugt. Skýr dæmi um þetta sáust svo eftir var tekið á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta þar sem meira fór fyrir auglýsingum en umfjöllun. Áður hefur lengd á útsendingum frá undankeppni Eurovision vakið mikla athygli þar sem lopinn er teygður til þess eins að koma fleiri auglýsingamínútum fyrir. Þetta er ekki einkamál RÚV. Þegar ríkisrekinn fjölmiðill, með tryggt fjármagn frá skattgreiðendum, leitast við að hámarka áhorf til að selja auglýsingar, raskast jafnræði á fjölmiðlamarkaði. Einkareknir miðlar neyðast til að keppa við stofnun sem getur tekið meiri áhættu, þolað tap og haldið úti umfangsmikilli starfsemi án þess að auglýsingatekjur dugi einar og sér undir kostnaði. Áhrifin teygja sig þó lengra. Í baráttunni um athygli og áhorf hefur RÚV í vaxandi mæli farið að sérframleiða efni sérstaklega fyrir erlenda samfélagsmiðla. Þar er ríkisstyrkt efni birt á vettvangi alþjóðlegra tæknirisa sem sjálfir selja auglýsingar með ríkisefninu án þess að greiða af þeim skatta hér á landi. Þannig viðheldur RÚV ógnarsterkri stöðu erlendra miðla á innlendum auglýsingamarkaði en sameiginlega hirða RÚV og erlendir miðlar um 60% af íslenskum auglýsingamarkaði. Nýlega fagnaði starfsfólk RÚV því að hafa birt þúsundasta myndband sitt á TikTok. Það er skiljanlegt að vilja ná til ungs fólks og fylgja breyttum miðlunarháttum. En spurningin sem þarf að spyrja er einföld: Er þetta rétt ráðstöfun á ríkisframlagi? Er það hlutverk almannaútvarps að afhenda ríkisstyrkta dagskrárframleiðslu ókeypis til erlendra auglýsingavéla sem starfa utan íslensks skattkerfis og regluverks? Þegar RÚV bæði nýtur ríkisstuðnings og keppir um auglýsingatekjur - og þegar sú keppni mótar dagskrárgerð, lengd efnis og miðlunarleiðir, er hætta á að grundvallarhlutverk stofnunarinnar veikist. Almannaþjónusta verður aukaatriði á meðan mælikvarðar auglýsingamarkaðarins ráða ferðinni. Þetta er ekki árás á starfsfólk RÚV né mikilvægi öflugs almannaútvarps. Þvert á móti er þetta ákall um skýrari stefnu. Annað hvort þarf að draga verulega úr auglýsingarekstri RÚV eða endurskoða með heildstæðum hætti hvernig réttlætanlegt er að ríkisrekinn fjölmiðill starfi á sama markaði og þeir sem bera alla áhættuna sjálfir. Ef við viljum fjölbreytt og sjálfbært fjölmiðlaumhverfi á Íslandi verðum við að horfast í augu við þessa staðreynd: núverandi fyrirkomulag þjónar hvorki almannaþjónustuhlutverki RÚV né heilbrigðri samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Höfundur er stjórnarformaður einkarekins fjölmiðils á Íslandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Fótbolti.net Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar