Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Árni Sæberg skrifar 2. febrúar 2026 16:44 Daði Már telur ómaklegt af Ólafi að kalla 45 þúsund króna útgjaldaaukningu Eyglóar landpósts skattahækkun. Vísir/Vilhelm/Anton Brink Fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum finnist ekki sanngjarnt að kalla aukin útgjöld konu á landsbyggðinni upp á 45 þúsund krónur á mánuði, vegna nýs kílómetragjalds, skattahækkun. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á máli konunnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fundi Alþingis í dag og spurði ráðherra hvort fólk á landsbyggðinni væri ekki venjulegt fólk, sem ríkisstjórnin hefði lofað að auka ekki álögur gagnvart.
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, steig í ræðustól Alþingis síðdegis og beindi fyrirspurn varðandi efnahagsmálin til Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra. „Við horfum nú upp á meiri verðbólgu annan mánuðinn í röð. Það verður að segjast að það hefur verið kostulegt að fylgjast með hæstvirtum fjármálaráðherra, og nú forsætisráðherra, afsaka eigin gjörðir, bæði hér í þinginu og í fjölmiðlum síðustu daga.“ Ólafur sagði að vextir standi í stað, verðbólga aukist, atvinnuleysi aukist en þetta sé allt öðrum að kenna, að sögn ríkisstjórnarinnar. „Hæstvirt ríkisstjórn er svo augljóslega úr takti við venjulega fólkið sem hún ætlaði að standa vörð um og alls ekki að hækka skatta og álögur á. Þetta sama venjulega fólk hefur fengið rukkun fyrir einn mánuð af kílómetragjaldi ríkisstjórnarinnar og er vægast sagt ósátt. Allt það sem stjórnarandstaðan benti á fyrir áramót er nú að raungerast. Við stjórnmálamenn eigum að vera málsvarar fólksins í landinu.“ Tók upp hanskann fyrir Eygló landpóst Það sagðist Ólafur vilja gera fyrir konu að nafni Eygló, sem starfar sem landpóstur og hringdi inn í símatíma Bítisins á Bylgjunni í morgun. „Eygló keyrir um 300 kílómetra á dag upp um fjöll og firnindi til að koma pósti í sveitir Suðurlands. Kostnaður hennar hefur hækkað um 45 þúsund á mánuði eða ríflega hálfa milljón á ári. Ekki getur hún keypt sér rafmagnsbíl því þeir eru ekki hannaðir fyrir fjallvegi eða vetrarfærð og lækkun á dísilolíu nemur ekki skattahækkun ríkisstjórnarinnar. Eygló sagði að þetta yrði í fyrsta skipti í 26 ár sem hún verði í mínus á ársuppgjöri sínu við Skattinn. Eygló er bara ein þeirra Íslendinga sem hafa kvartað sáran undan þessari skattahækkun og það á sérstaklega við um fólk úti á landi. Er það fólk ekki venjulega fólkið eða hvað? Ég spyr hæstvirtan fjármálaráðherra: Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Spilin geti fallið á ýmsa vegu Daði Már þakkaði Ólafi fyrirspurnina en benti á að hann hefði sjálfur tekið þátt í umræðum um upptöku kílómetragjalda og að raunar hefði Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur undirbúið kerfisbreytinguna. Þá væri það svo að í þeim breytingum sem urðu á vísitölu neysluverðs núna um áramót væri það mat Hagstofu Íslands að áhrifin á vísitölu neysluverðs séu hálft prósent. „Auðvitað er þetta veruleg kerfisbreyting en við þurfum að taka tillit til þess að fram að þessari kerfisbreytingu hafði þróunin verið sú að reikningurinn fyrir viðhaldi vegakerfisins hafði í stærra mæli verið sendur á þá sem óku eldri og stærri bílum. Það er athyglisvert að háttvirtur þingmaður Ólafur Adolfsson geri landsbyggðina hér að umræðuefni vegna þess að það var vandlega kannað hver áhrifin væru einmitt á landsbyggðina. Þau voru nettó jákvæð. Það er alveg ljóst að í meiri háttar kerfisbreytingum geta spilin fallið á ýmsa vegu en að kynna þetta sem skattahækkun, þegar háttvirtur þingmaður veit fullvel að svo var ekki, finnst mér ekki fullkomlega sanngjarnt.“ „Ómögulegt mál“ Ólafur tók aftur til máls og sagði Daða Má hafa skautað fram hjá því að nefna að þingflokkur Sjálfstæðismanna hafi hafnað málinu, þannig að það fór ekki í gegn í tíð síðustu ríkisstjórnar. „Viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar hér hafa einmitt lotið að því að þetta sé ómögulegt mál. Af hverju viljum við vera fyrsta þjóð í heimi til að búa til þetta kerfi? Af hverju er þetta hvergi til annars staðar?“ Þessa spurningu kvaðst fjármálaráðherra alls ekki skilja. „Ég skil alls ekki þetta viðhorf. Ef ástæða er til þess að gera skynsamlegar breytingar þá gerum við þær og Íslendingar eru svo sannarlega fyrstir á mjög mörgum sviðum. Af því getum við verið stolt. Oft er það þannig að okkar litla samfélag getur gert breytingar sem öðrum vaxa í augum. Ég er ekki þar með að segja að allar breytingar sem við eigum frumkvæði að séu skynsamlegar. Ég er einungis að segja það að ég botna ekkert í því að skammast sín fyrir að vera fyrstur.“
Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kílómetragjald Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Bílar Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira