Handbolti

Danir kok­hraustir: „Fílingurinn sá að þennan leik eigi þeir að vinna“

Aron Guðmundsson skrifar
Það verður hart barist í Boxen í Herning á morgun þegar að Ísland og Danmörk mætast í undanúrslitum EM í handbolta
Það verður hart barist í Boxen í Herning á morgun þegar að Ísland og Danmörk mætast í undanúrslitum EM í handbolta Vísir/Samsett

Þor­valdur Flemming, Ís­lendingur sem hefur búið í Dan­mörku til fjölda ára, skynjar það að Danir séu kok­hraustir fyrir undanúr­slita­leikinn gegn Ís­landi á EM í hand­bolta.

Þorvaldur segir mikla stemningu ríkjandi meðal dönsku þjóðarinnar fyrir undanúrslitaleiknum gegn Íslandi á EM á morgun en leikur liðanna fer fram í Herning í Danmörku.

„Það er rosa stemning, svakaleg stemning. Það var byrjað strax að tala um þennan leik í vinnunni hjá mér í morgun. Það eru 75 prósent líkur á því að Íslendingar verði Evrópumeistarar. Þrjú af þessum fjórum liðum eru með íslenska þjálfara,“ sagði Þorvaldur í viðtali í Bítinu á Bylgjunni kíminn. 

Þegar kemur að leik Íslands og Danmerkur á morgun er hann ekki í nokkrum vafa um það hvort liðið hann styðji.

„Ég er hundrað prósent íslenskur í þessu öllu. Það er enginn í vafa um það. Maður er rótgróinn Íslendingur, þó ég sé alveg rótgróinn Dani núna líka þá liggja ræturnar alltaf til Íslands. Ég er aldrei í vafa þegar Danir eru annars vegar, þá held ég alltaf með Íslendingum.“

Hann hefur notið þess að fylgjast með íslenska landsliðinu á yfirstandandi Evrópumóti og segir það eiga möguleika á móti hinu ógnarsterka liði Danmerkur sem er ríkjandi heims- og ólympíumeistari.

„Mér lýst frábærlega á þetta lið. Þetta lið er sennilega eitt af þeim liðum sem hefur möguleika á móti Danmörku ef einhver hefur það. Danska liðið er náttúrulega frábært en við erum með þessa fljótu stráka sem geta rúllað sér í gegnum vörnina. Þeir eiga erfiðara með það Danirnir heldur en þessi klassísku lið þar sem að menn eru að stökkva upp fyrir utan og allt þetta.“

Hjartað segir honum að Ísland vinni en það gæti reynst erfitt hjá Íslendingum að finna leiðir fram hjá besta markmanni í heimi, Emil Nielsen og að stöðva besta handboltamann í heimi, Mathias Gidsel.

Íslenska landsliðið komið í undanúrslit á EM og þrjú af þeim fjórum liðum sem taka þátt í undanúrslitunum spila undir stjórn Íslendinga. 

Auk Íslands, sem þjálfað er af Snorra Steini Guðjónssyni eru Þýskaland sem spilar undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og Króatía sem spilar undir stjórn Dags Sigurðssonar. Þorvaldur segir eftir þessum árangri tekið í Danmörku.

„Það er tekið eftir því og almennt séð tekið eftir því hversu ótrúlegt lið Ísland sé með. Fílingurinn í Dönum er sá að þennan leik eigi þeir bara að vinna, almenni Daninn segir það.“


Tengdar fréttir

Skuldar þjálfara Dana öl

Þó að Danir væru þegar búnir að tryggja sig inn í undanúrslit á EM í handbolta, fyrir leiki gærdagsins, þá höfðu úrslitin í leik þeirra gegn Noregi afar mikla þýðingu fyrir önnur lið.

„Sem faðir er mikil þjáning að fylgjast með þessu“

Guðjón Guðmundsson, eða Gaupi, er einn helsti handboltasérfræðingur landsins en hann er líka pabbi landsliðsþjálfarans Snorra Steins og fylgdist stoltur með í Malmö þegar Ísland vann sig inn í undanúrslit EM í gær. En það er líka erfitt að vera pabbi þegar allt er undir á stórmóti.

Alfreð brosti breitt: „Hafði hárrétt fyrir mér sem betur fer“

Þó að spennan væri í hámarki í leik Þýskalands og Frakklands á EM í handbolta í gær gat Alfreð Gíslason gat ekki annað en brosað breitt þegar hann tók leikhlé á hárréttum tímapunkti, öfugt við umdeilt leikhlé sem hann tók fyrr í mótinu.

Farseðill á næsta stórmót í höfn

Um leið og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu tryggðu sig inn í undanúrslit á EM fengu þeir einnig farseðil inn á heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi að ári.

„Þeir virðast bara vilja brjóta múra fyrir hann“

Snorri Steinn Guðjónsson er búinn að skila íslenska landsliðinu alla leið í undanúrslit á sínu þriðja stórmóti með liðið. Sérfræðingar Besta sætisins voru skiljanlega mjög sáttir með landsliðsþjálfarann.

Óvinur Íslands heldur nú með Íslandi

Sænski handboltaþjálfarinn Andreas Stockenberg hraunaði eftirminnilega yfir íslenska handboltalandsliðið og varð á augabragði einn helsti óvinur Íslands. Nú er komið annað hljóð í kappann.

Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur

Ísland mætir Danmörku í undanúrslitum Evrópumótsins í handbolta á föstudagskvöldið en í kvöld varð endanlega ljóst að heims- og Ólympíumeistararnir bíða íslensku strákanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×