Ævintýri á slóðum Vesturfara Karítas Hrundar Pálsdóttir skrifar 28. janúar 2026 09:30 Ég fékk þann heiður að fara sem einskonar sendiherra Snorra-verkefnisins til Manitoba í Kanada síðasta sumar. Snorraverkefnið, í nánu samstarfi við ÞFÍ, leitast við að styrkja tengslin á milli Íslendinga og Vestur-Íslendinga með ferðum fyrir ungt fólk þar sem það fær að kynnast sögunni og mynda tengsl við ættingja. Ég fór sjálf til vesturstrandar Kanada og Bandaríkjanna árið 2019 og hitti nákominn frænda en hann og langamma mín voru systkinabörn. Það er alveg magnað að fá að upplifa á eigin skinni hversu stutt er frá Vesturferðunum sem ég lærði um í 9. bekk í grunnskóla. Meðal hápunkta ferðar minnar til Kanada árið 2025 var að fá að kynnast börnum og unglingum í sumarbúðunum Icelandic Camp í Gimli og fá að kenna þeim íslensku. Í gegnum leiki, lestur og söng lærðu krakkarnir meðal annars litina, tölurnar, mánuðina og gátu sagt til um aldur og afmælisdag. Þá sungu þau Bíbí og blaka og Krummi krunkar úti með eftirtektarverðum framburði. Íslendingadagurinn (ekki láta blekkjast, þetta er fjögurra daga hátíð) kom svo skemmtilega á óvart með fjölbreyttum viðburðum: sandkastalakeppni, tískusýningu, skrúðgöngu, íslenskum mat og svo framvegis. Þetta var um Verslunarmannahelgina og eins og vill verða þá helgi á Íslandi myndaðist mikil ættarmótastemning. Það var mikil gleði og fólk ánægt að hittast og fagna sameiginlegri sögu og uppruna. Það dýrmætasta við ferðina var samt allt fólkið sem ég kynntist og sú mikla gestrisni sem ég mér var sýnd. Þau buðu mig velkomna sem eina úr fjölskyldunni. Til gamans má geta að ég kynntist stelpu að nafni Anna Sóley Pálsson. Hún er Pálsson en ég Pálsdóttir og báðar eigum við „ömmu Svövu“. Það er dýrmæt tenging. Nú í sumar stendur Snorraverkefnið aftur fyrir ferð til vesturstrandar Kanada og Bandaríkjanna, á sömu slóðir og ég heimsótti árið 2019. Ég mæli með svona ævintýraferð fyrir alla á aldrinum 20 til 30 ára. Mér fannst saga Vestur-Íslendinganna verða mér ljóslifandi en auk þess fór ég á hafnarboltaleik, í útsýnisflug og á vínekru svo eitthvað sé nefnt og fékk höfðinglegar móttökur hvar sem ég kom. Áhugasamir geta mætt á kynningarfund 5. febrúar klukkan 18:00 á Óðinsgötu 7 en umsóknarfrestur er til 16. febrúar, nánari upplýsingar á snorri.is. Höfundur var Snorri West Alumni Intern árið 2025 og þátttakandi í Snorra West 2019. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslendingar erlendis Kanada Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar