Skotið sem geigaði og breytti öllu fyrir Ísland Aron Guðmundsson skrifar 27. janúar 2026 22:43 Palicka í leik á Evrópumótinu með landsliði Svía Vísir/EPA Jafntefli Svía gegn Ungverjum í kvöld í milliriðlum EM í handbolta sér til þess að íslenskur sigur á morgun gegn Slóveníu tryggir Strákunum okkar sæti í undanúrslitum mótsins. Litlu sem engu munaði að staðan hefði verið allt önnur.
Það var á lokasekúndum leiksins, í stöðunni 32-32, sem boltinn endaði hjá Andreas Palicka, reynsluboltanum í marki Svía sem varði skot Ungverja, lét svo skot vaða yfir allan völlinn og freistaði þess að tryggja Svíum mikilvægan sigur. Sigurinn hefði komið Svíum í bílstjórasætið í riðlinum og farið langt með að tryggja þá áfram í undanúrslit mótsins. Skot Palicka fór hins vegar rétt fram hjá markinu og leiktíminn rann út. Fyrir lokaumferð riðilsins eru Svíar ekki með örlögin í sínum eigin höndum. Heldur þurfa þeir að vinna Sviss og treysta á að önnur úrslit falli sér í vil, að Ísland eða Króatía tapi stigum. View this post on Instagram A post shared by SVT Sport (@svtsport) Palicka varði oft á tíðum frábærlega í leiknum gegn Ungverjum í kvöld og hefur svo sannarlega staðið sína plikt með prýði með Svíum í gegnum tíðina en í viðtali eftir leik var hann bugaður. „Ég varð að láta vaða í átt að marki. Ég vissi ekki hvort að það væru fimm sekúndur eða ein sekúnda eftir af leiktímanum,“ sagði Palicka í samtali við TV 2 eftir leik. Aðspurður hvort framundan væri andvökunótt hafði Palicka þetta að segja: „Já ég held það klárlega.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira