Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 12:03 Ingibjörg Isaksen er sú eina af þeim sem orðuð hefur verið við formann Framsóknar sem á sæti á þingi. Vísir/Vilhelm Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins hefur boðið sig fram til formanns flokksins. Þetta tilkynnti hún í morgun en hún segir flokkinn standa á tímamótum og mikilvægt að formaður flokksins eigi sæti á Alþingi.
Flokksþing Framsóknarflokksins fer fram dagana 14. til 15. febrúar og verður þar kjörinn nýr formaður flokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson hyggst eftir níu ár í embætti ekki bjóða sig fram aftur. Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður og oddviti flokksins í Norðausturkjördæmi tilkynnti framboð í morgun og er sú fyrsta til að gera það formlega. „Framsókn stendur í dag á tímamótum og samfélagið líka,“ segir Ingibjörg í samtali við fréttastofu. „Staða flokksins í dag er með þeim hætti að það er kallað á breytingar og nýja tíma. Við erum að fara að kjósa okkur forrustu um miðjan febrúar þar sem verður kosið um formann, varaformann og ritara. Ég hef fengið mikla hvatningu og skorað á mig úr mörgum áttum og þetta eru spennandi tímar fyrir Framsókn.“ Hún segist búa að góðri reynslu úr sveitarstjórnarmálum og landsmálum sem þingflokksformaður. Hafi setið í stjórn og stjórnarandstöðu sem sé dýrmæt reynsla sem geti nýst henni áfram í verkefninu fái hún umboð til þess. Þegar hefur Stefán Vagn Stefánsson boðið sig fram til varaformanns flokksins og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir býður sig áfram til að gegna embætti ritara. Ingibjörg segist vona að fleiri bjóði sig fram til formanns. Ítrekað hefur verið skorað á bæði Willum Þór Þórsson og Lilju Alfreðsdóttur að gefa kost á sér og liggja þau nú undir feldi. Bæði eru þau utan þings eftir síðustu Alþingiskosningar. Þeir sem hafa verið orðaðir við framboð í formanninn, þau eru bæði utan þings, finnst þér skipta máli að formaður Framsóknar sé á þingi? „Það er vissulega áskorun að vera utan þings og ég tala nú ekki um ef við erum að horfa til næstu þriggja ára, ef við sjáum að það verði kosningar eftir kjörtímabilið. En það eru vissulega stór mál núna í umræðu á þinginu og það skiptir máli að hafa sterka rödd fyrir okkur í Framsókn. Þannig það er styrkleiki að formaðurinn sé í þinginu og sitji á þingi. En auðvitað er það þannig að við í Framsókn erum samvinnuflokkur og sama hvaða einstakling flokksfélagar okkar kjósa sér til forrustu þá munum við finna leiðir til að láta það ganga.“
Framsóknarflokkurinn Alþingi Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í starfsmannaferð Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira