Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 23:28 Það er þung stemning í þýska karlalandsliðinu í handbolta eftir svekkjandi úrslit á EM í kvöld gegn Serbum Vísir/Samsett Juri Knorr, leikstjórnandi þýska landsliðsins, virtist gagnrýna landsliðsþjálfarann Alfreð Gíslason óbeint í viðtali eftir svekkjandi tap gegn Serbum á EM í kvöld þar sem Alfreð gerði sig sekan um slæm mistök.
Serbar fóru með þriggja marka sigur af hólmi, 30-27, frá leik kvöldsins og eygja enn möguleika á sæti í milliriðlum fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. Samkvæmt þýskum miðlum eftir svekkjandi úrslit kvöldsins þykir það eftirtektarvert hversu auðsjáanlega gramur Juri Knorr, leikstjórnandi þýska landsliðsins var í viðtölum en leikmaðurinn hefur mátt sætta sig við takmarkaðan spiltíma undir stjórn Alfreðs upp á síðkastið en byrjaði þó leik kvöldsins. Ekki bætti það úr skák í stöðunni 26-25 Serbum í vil, nokkrum mínútum fyrir leikslok, að þegar Juri Knorr virtist hafa skorað jöfnunarmark hafði Alfreð nokkrum sekúndubrotum áður en boltinn fór yfir marklínuna beðið um leikhlé og því stóð mark Þjóðverjans ekki og Þýskaland því einu marki undir. Þeim tókst ekki að snúa leiknum sér í vil fyrir leikslok og töpuðu á endanum með þremur mörkum 30-27. Í viðtali eftir leik telja þýsku miðlarnir að Knorr hafi óbeint gagnrýnt Alfreð en Þjóðverjar munu helst þurfa að vinna Spánverja í lokaleik sínum í riðlakeppninni og vonast til þess að Serbar tapi stigum gegn Austurríki til þess að komast áfram í milliriðla. „Við gerum það ekki einir. Okkur mun ekki takast það eru aðeins leikmennirnir sem spila mínúturnar sextíu,“ sagði Knorr um baráttuna framundan en þetta telja þýsku miðlarnir vera skot á þjálfarann Alfreð. Pressan var fyrir mikil á Alfreð því þó að samningur hans við þýska handknattleikssambandið gildi til ársins 2027 lét forseti sambandsins hafa það eftir sér undir lok síðasta árs að staða Íslendingsins yrði til skoðunar ef gengi Þýskalands á EM yrði undir væntingum. Alfreð var sjálfur skiljanlega svekktur með niðurstöðu kvöldsins og tók á sig sökina vegna mistakanna undir lok leiks. „Ég vildi taka leikhlé á meðan að það væri enn fullur kraftur í okkur. Því miður ýtti ég nokkrum sekúndubrotum of snemma á leikhlés takkann. Það er algjörlega mín sök,“ sagði Alfreð í viðtali við ARD eftir leik.
EM karla í handbolta 2026 Íslendingar erlendis Handbolti Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira