Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. janúar 2026 12:41 Flugvél Play á Keflavíkurflugvelli á meðan flugfélagsins naut við. Það var tekið til gjaldþrotaskipta í haust. Vísir/Egill Innviðaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Samgöngustofu um að vísa frá kvörtun fjögurra farþega sem ýmist var vísað úr eða yfirgáfu flugvél Play í Danmörku haustið 2024. Farþegarnir kröfðust þess að brottvísunin yrði metin ólögmæt og að þeim yrðu dæmdar skaða- og miskabætur.
Einn farþeganna hafði keypt sex flugsæti fyrir fjölskylduna en tveir úr hópnum forfölluðust. Hinir fjórir hugðust nýta aukasætin í fluginu og voru ósáttir þegar flugáhöfnin ætlaði að ráðstafa sætunum til annarra farþega. Upp kom ágreiningur sem endaði með því að einum farþega var vísað frá borði. Í kjölfarið yfirgáfu hin þrjú flugvélina. Farþegarnir leituðu til Samgöngustofu og kröfðust úrskurðar um ólögmæta brottvísun og bótarétt. Stofnunin vísaði málinu hins vegar frá á þeim grundvelli að það félli ekki undir valdssvið hennar, þar sem flugið fór frá Danmörku en ekki frá íslensku yfirráðasvæði. Sú ákvörðun var kærð til innviðaráðuneytisins. Í úrskurði ráðuneytisins, sem kveðinn var upp í síðustu viku, er fallist á sjónarmið Samgöngustofu. Þar kemur fram að samkvæmt loftferðalögum og reglugerð Evrópusambandsins um réttindi flugfarþega sé almenna reglan sú að kvartanir skuli teknar til meðferðar í því ríki sem flug leggur upp frá. Þar sem brottvísunin átti sér stað í Danmörku hafi Samgöngustofa ekki haft vald til að úrskurða í málinu. Ráðuneytið gagnrýnir þó að Samgöngustofa hafi ekki leiðbeint farþegunum strax um að leita réttar síns hjá dönskum stjórnvöldum, eins og henni bar samkvæmt stjórnsýslulögum. Þar sem þær leiðbeiningar hafi síðar verið veittar hafi það þó ekki áhrif á niðurstöðuna. Play varð gjaldþrota síðastliðið haust.
Play Fréttir af flugi Danmörk Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira