Jafnaði sig af heilaskurðaðgerð og mætir Littler á afmælisdaginn Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. desember 2025 17:16 Krzysztof Ratajski á ótrúlega endurkomusögu. Steven Paston/PA Images via Getty Images Pílukastarinn Krzysztof Ratajski, einnig þekktur sem pólski örninn, er kominn aftur á kreik eftir heilaskurðaðgerð og er á leið í átta manna úrslit heimsmeistaramótsins, þar sem hann mun fagna afmæli og mæta ríkjandi heimsmeistaranum Luke Littler.
Hinn 48 ára gamli Ratajski hefur aldrei unnið stærstu mótin eða orðið heimsmeistari en öðlaðist frægð fyrir mikinn stöðugleika og hélt sér í fremstu röð pílukastara um árabil. Hann er líka brautryðjandi í heimalandinu og var fyrsti Pólverjinn til að keppa á HM í pílukasti. Á síðasta ári féll hann út af heimslistanum í fyrsta sinn á ferlinum en hann greindi frá því eftir að hafa unnið Wesley Plaisier, með hádramatískum hætti í síðustu umferð, að hann hefði gengist undir tvær heilaskurðaðgerðir á síðasta ári. „Ég fagna ekki oft, en þegar leikurinn er svona tæpur og maður nær að snúa við 3-1 stöðu þá leyfir maður sér að fagna… Ég hef verið að glíma við vandamál tengd heilsunni en það er allt í góðu lagi núna. Vonandi get ég farið að klifra aftur upp heimslistann“ sagði Ratajski. WOODHOUSE JUST MISSES THE NINE 😢You should have gone for it, Luke 🤣Luke Woodhouse goes eight darts perfect into the leg, but misses double 12... and Krzysztof Ratajski wins the leg 😳📺 https://t.co/59TualjgND #WCDarts | R4 pic.twitter.com/MrQxUkDi7J— PDC Darts (@OfficialPDC) December 30, 2025 Í dag sló hann svo rísandi stjörnuna Luke Woodhouse út í sextán manna úrslitum og komst áfram í átta manna úrslit. Spennan var áþreifanleg í viðureign þeirra tveggja en Ratajski vann síðustu tvö settin örugglega og leikinn að endingu 4-2. RATAJSKI WINS! 🇵🇱Krzysztof Ratajski is a World Championship quarter-finalist for the second time!The Polish Eagle wraps up a 4-2 victory over Luke Woodhouse to set up a last eight clash against Luke Littler! 👀📺 https://t.co/59TualjgND #WCDarts | R4 pic.twitter.com/d6RguwLmmr— PDC Darts (@OfficialPDC) December 30, 2025 Pólski örninn mun svo mæta efsta manni heimslistans og ríkjandi heimsmeistaranum, Luke Littler, í átta manna úrslitum á nýársdag. Þar verður Ratajski væntanlega vel tekið af áhorfendum í salnum, enda fagnar hann 49 ára afmæli sama dag. Á sama tíma má búast við því að áhorfendur í salnum láti Luke Littler heyra það, eftir ummælin sem kappinn lét falla í gærkvöldi.
Pílukast Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira