Handbolti

Bein út­sending: Snorri kynnir EM-strákana okkar

Sindri Sverrisson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson er búinn að velja sinn EM-hóp og hefur eflaust notið hjálpar aðstoðarþjálfarans Arnórs Atlasonar.
Snorri Steinn Guðjónsson er búinn að velja sinn EM-hóp og hefur eflaust notið hjálpar aðstoðarþjálfarans Arnórs Atlasonar. vísir/Vilhelm

HSÍ heldur blaðamannafund í húsakynnum Arion í dag, þar sem Snorri Steinn Guðjónsson mun skýra frá vali sínu á landsliðshópnum sem fer á EM í handbolta í janúar. Fundurinn er í beinni útsendingu á Vísi.

Snorri hefur áður valið þá 35 menn sem hægt verður að kalla í hvenær sem er þar til að mótinu lýkur. Nú er komið að því að skera niður og segja til um hverjir fara á sjálft mótið.

Ísland byrjar á að spila í riðlakeppni í Kristianstad í Svíþjóð, við Ítalíu 16. janúar, Pólland 20. janúar og Ungverjaland 22. janúar. Tvö lið komast svo áfram í milliriðil í Malmö.

Fundurinn hefst klukkan 13 og má sjá hann í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×