„Þetta er bara algjörlega galið“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. desember 2025 21:32 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. vísir/einar Vinnubrögð fyrirtækja sem bjóða neytendum að borga jólainnkaupin í febrúar eru síðasta sort og gjörsamlega galin að mati formanns Neytendasamtakanna. Mörg dæmi séu um að fólk fari illa út úr slíkum viðskiptum þar sem er verslað núna og borgað seinna.
Ýmis fyrirtæki bjóða viðskiptavinum að dreifa greiðslum í aðferð sem gjarnan er vísað til sem, verslaðu núna og borgaðu seinna. Aðferðin hefur sérstaklega verið auglýst í kringum stóra verslunardaga í nóvember og fyrir jól sem hentug leið til að borga jólainnkaupin seinna. Sum fyrirtæki bjóða upp á að viðskiptavinir borgi jólin í febrúar. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, varar við þessari aðferð sem hann segir færast í aukana. „Kaupa núna, borga seinna er stórt vandamál og áhyggjuefni ekki bara hér á Íslandi heldur líka víða í Evrópu. Þar sem fólk er hvatt til að kaupa og kaupa og kaupa en að það geti þá borgað síðar og það er eitthvað sem við viljum ekki sjá. Því ef þú átt ekki efni á að borga í dag þá eru mjög litlar líkur á að þú hafir efni á því á morgun.“ Margir hafi farið illa út úr því Lánin séu verulega dýr og oft erfitt að gera sér grein fyrir hve mikið þau kosta í raun. Fólk leiti gjarnan í lánin þegar yfirdráttarheimildin er búin. „Við fáum reglulega til okkar fólk sem hefur farið illa út úr því að taka þessi létt-smálán og getur ekki staðið í skilum og þetta er yfirleitt þannig að þetta er síðasta sort. Það er eitthvað sem við viljum ekki sjá fólk gera og við viljum heldur ekki að heiðvirð fyrirtæki séu að þrýsta fólki út í það að taka lán sem það hefur ekki efni á að borga af. Það eru dýrustu lánin, allt að fjörutíu prósenta vextir. Þetta er bara algjörlega galið.“ Hann kveðst hissa og blöskrar að stærri fyrirtæki færi sig í hálfgerðan smálánarekstur. „Við höfum verið að sjá bankana fara út í þetta. Við höfum verið að sjá símfyrirtæki fara í út í þetta. Ég bara bið þau um að staldra við og hugsa sig um hvað þau séu að gera að veita svona dýr lán. Þetta er algjör óþarfi.“
Neytendur Lánamál Smálán Fjármál heimilisins Verslun Tengdar fréttir Kvika nú eini eigandi Netgíró Kvika banki hefur gengið frá kaupum á áttatíu prósenta hlut í fyrirtækinu Netgíró og er nú eini eigandi félagsins. Fyrir átti bankinn tuttugu prósent, en viljayfirlýsing um kaupin var undirrituð síðasta sumar. 22. janúar 2021 20:42 Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Kvika nú eini eigandi Netgíró Kvika banki hefur gengið frá kaupum á áttatíu prósenta hlut í fyrirtækinu Netgíró og er nú eini eigandi félagsins. Fyrir átti bankinn tuttugu prósent, en viljayfirlýsing um kaupin var undirrituð síðasta sumar. 22. janúar 2021 20:42