„Hvað getur Slot gert?“ Stefán Árni Pálsson skrifar 10. desember 2025 09:32 Albert Brynjar telur að Salah verði ekki í leikmannahópi Liverpool í lokaleiknum fyrir Afríkukeppnina. vísir/getty/sýn Sérfræðingur Sýnar Sport telur ólíklegt að Mo Salah spili fleiri leiki fyrir Liverpool, ekki nema aðstæður breytist til muna hjá félaginu og að þjálfarinn verði látinn taka poka sinn.
Stórstjarna Liverpool Mo Salah ferðaðist ekki með Liverpool yfir til Mílanóborgar þar sem liðið mætti Inter í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi og vann 1-0 útisigur. Mikið kurr hefur verið í kringum leikmanninn hjá félaginu eftir að Egyptinn mætti í viðtal eftir 3-3 jafntefli gegn Leeds um helgina. Þá var Salah á varamannabekknum þriðja leikinn í röð. Salah birti þessa mynd á samfélagsmiðlinum X-inu í morgun þar sem sjá má hann einan á æfingasvæði félagsins. Margir telja að Salah spili ekki meira með Liverpool en eftir leik liðsins gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni heldur Salah út á Afríkukeppnina með Egyptum. „Ég reikna með að hann verði ekki í hóp í þeim leik heldur. Ekki nema eitthvað mikið breytist og það komi út einhver opinber afsökunarbeiðni,“ segir Albert Brynjar Ingason knattspyrnusérfræðingur Sýnar í Sportpakkanum í gærkvöldi. „Hvað getur Slot gert? Hann getur misst allan trúverðugleika að henda honum bara aftur inn í hóp án þess að fá einhvers konar afsökunarbeiðni. En gengi Liverpool er skelfilegt á tímabilinu. Ef Slot verður látinn fara þá gæti staða Salah breyst. Svo sjáum við hvað er að gerast hjá Real Madrid. Það er talað um að leikur Real á móti City í Meistaradeildinni gæti orðið úrslitaleikur hjá [Xabi] Alonso með hans framtíð. Við gætum allt í einu séð það í janúar að Alonso verði kominn til Liverpool og þá gæti þetta allt breyst með Salah,“ segir Albert.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Fótbolti Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Fótbolti Martin frábær í sigurleik Körfubolti Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira