Pétur hættur sem forstjóri Reykjalundar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 24. nóvember 2025 12:43 Svana Helen Björnsdóttir mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn í stað Péturs Magnússonar sem hefur samið um starfslok. aðsend Pétur Magnússon hefur sagt upp sem forstjóri Reykjalundar og hefur gert samkomulag við stjórn stofnunarinnar um starfslok. Svana Helen Björnsdóttir, stjórnarformaður Reykjalundar, mun gegna starfi forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjalundi þar sem haft er eftir Pétri að starfslokin marki stór tímamót í hans lífi. „Í dag eru stór tímamót í mínu lífi þegar ég læt af störfum sem forstjóri Reykjalundar. Starfslokin eru að minni eigin ósk og hafa ekkert með frábært samstarfsfólk eða daglega starfsemi Reykjalundar sérstaklega að gera. Á næstunni verð ég 55 ára gamall og hef þá verið í forstjórastóli heilbrigðisstofnana í næstum 20 ár, fyrst rúm 12 ár á Hrafnistuheimilinum og nú tæp 6 ár á Reykjalundi. Hér á Reykjalundi hafa það verð forréttindi og mikill heiður að vinna með því frábæra fólki sem hér starfar, sannkallað landslið í endurhæfingu eins og við segjum oft og starfsfólk stoðdeilda starfseminnar ekki síðra,” er haft eftir Pétri í tilkynningunni. Starfið auglýst fljótlega Pétur tók fyrst við sem forstjóri Reykjalundar vorið 2020 en þá hafði ríkt þónokkur ólga innan stofnunarinnar: Þá þakkar Svana Helen Pétri fyrir sín störf og framlag í þágu Reykjalundar undanfarin fimm ár. „Mikilvægi sérhæfðrar endurhæfingar líkt þeirri sem boðið er upp á hjá Reykjalundi hefur aldrei verið brýnna. Endurhæfing er ein hagkvæmasta heilbrigðisþjónusta sem völ er á en með henni öðlast fólk tækifæri til að taka aftur fullan þátt í samfélaginu,“ er haft eftir Svönu. Í tilkynningunni segir einnig um bakgrunn Svönu að hún hafi doktorsgráðu í kerfisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess sem hún starfar sem aðjúnkt við skólann. Þá er hún bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, situr í stjórn SORPU bs. og er varaformaður SL lífeyrissjóðs. Þá segir í tilkynningu að Pétur verði stjórnendum Reykjalundar áfram til aðstoðar næstu mánuði. Starf forstjóra verði auglýst fljótlega.
Heilbrigðismál Vistaskipti Mosfellsbær Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira