Ríkið greiddi 642 milljónir vegna ágreinings, eineltis og brottreksturs Eiður Þór Árnason skrifar 29. október 2025 16:45 Fjármála- og efnahagsráðuneytið greiddi út 142 milljónir króna í kjölfar dóma og úrskurða sem vörðuðu einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum. Vísir Íslenska greiddi 642 milljónir króna í kjölfar úrskurða eða dóma er varða ágreining, uppsagnir eða brottrekstur opinberra starfsmanna á árunum 2015 til 2024.
Samtals voru 437 milljónir króna greiddar í bætur. Til viðbótar bættust við tæpar 88 milljónir króna í vexti og 117 milljónir króna vegna málskostnaðar og annars lögfræðikostnaðar. Langmest hefur verið greitt vegna starfsmannamála innan Landspítala, eða 188 milljónir króna vegna sex ólíkra mála. Næst mest hefur ríkissjóður greitt vegna Hafrannsóknarstofnunar, eða rúma 51 milljón króna vegna 13 starfsmannamála. Það eru fleiri mál en hjá nokkurri annarri ríkisstofnun á tímabilinu. Þetta má lesa úr gögnum frá ríkislögmanni sem fréttastofa hefur undir höndum og upplýsingum úr svari við þingmannafyrirspurn. RÚV greindi fyrst frá málinu. Samkvæmt þeim og hafa um 438 milljónir króna verið greiddar í tengslum við 55 mál er varða uppsagnir eða brottrekstur, 142 milljónir króna vegna 40 mála sem tengjast einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum, og tæpar 62 milljónir vegna 10 ólögmætra ráðninga. Alls hafa verið greiddar bætur vegna 105 mála á árunum 2015 til 2024. 113 milljónir vegna uppsagna og brottreksturs á Landspítala Landspítalinn er einn stærsti vinnustaður landsins en í tilviki hans voru 113 milljónir króna greiddar út vegna uppsagna eða brottreksturs og tæpar 5 milljónir króna vegna mála er tengjast einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum. Hjá Hafrannsóknarstofnun voru rúmar 48 milljónir króna greiddar í kjölfar úrskurða eða dóma sem tengdust uppsögnum eða brottrekstri og tæpar 3 milljónir vegna eineltis, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningum. Litlar stofnanir hátt á lista Á tímabilinu var þriðja hæsta fjárhæðin greidd út vegna uppsagna, brottrekstur og ágreiningsmála hjá Skattinum og Tollstjóra eða tæplega 36 milljónir króna. Næst á eftir kemur Úrskurðarnefnd velferðarmála með rúmar 35 milljónir króna. Í fimmta sæti kemur Þjóðgarðurinn á Þingvöllum með um 25 milljónir króna en þar af var tæp 21 milljón króna var greidd út til Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur vegna ólögmætrar ráðningar Einars Á. E. Sæmundsen í stöðu þjóðgarðsvarðar. Þetta er hæsta upphæðin sem ríkissjóður hefur greitt einstaklingi í bætur í kjölfar úrskurðar eða dóms er varðar ágreining, uppsagnir eða brottrekstur opinberra starfsmanna á árunum 2015 til 2024. Til viðbótar voru um 4,5 milljónir króna greiddar til starfsmanns Þjóðgarðsins á Þingvöllum vegna máls sem tengdist einelti, áreitni eða vanrækslu á kjarasamningi. Nálgast má skjal með listanum í heild hér fyrir neðan. Tengd skjöl Bætur_vegna_starfsmannamála_2015-2024PDF447KBSækja skjal
Mest lesið „Alveg brjálaður yfir því að hann sé að hjóla á götunni“ Innlent Vélfagsmönnum heitt í hamsi á fundi Viðreisnar Innlent Fundinum lokið án niðurstöðu Innlent Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar út Innlent Kynna fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar Innlent Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Innlent Ódæði eftir fall El Fasher: Blóðið sýnilegt úr geimnum Erlent Lögreglumenn svekktir að sjá hversu margir hundsuðu fyrirmæli í gær Innlent Lögreglumenn hundfúlir með bruðl ríkislögreglustjóra Innlent Fólk sæki um námsmannaleyfi í annarlegum tilgangi Innlent Fleiri fréttir Séreignarleiðin gerð varanleg og nýtist til tíu ára Myndskeiðið segi ekki alla söguna Vinstri grænir í Reykjavík gagnrýna leikskólaplan borgarinnar Reynsluboltum sagt upp í skugga ráðgjafabruðls Þúsundir nýrra íbúða og óvissu eytt: „Verið að einfalda og hagræða“ „Alveg brjálaður yfir því að hann sé að hjóla á götunni“ Fólk sæki um námsmannaleyfi í annarlegum tilgangi Aðgerðir í húsnæðismálum og þung stemning hjá ríkislögreglustjóra Ekið á unga stúlku á Ásbrú Skjálfti í Bárðarbungu mældist um fjórir að stærð Boða róttækar breytingar á byggingarreglugerð Draga úr skattfrelsi fólks sem safnar íbúðum Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar út Vandræðamál hjá Hafró og Landspítala bera af í fjölda og kostnaði Snjóhengjur geti skapað hættu Tugir ökumanna í vandræðum á Suðurnesjum Vélfagsmönnum heitt í hamsi á fundi Viðreisnar Góður grunnur en ekki nóg til að opna Þurftu að halda peppfund á lygilegum óhappadegi Lokuðu veginum um Kjalarnes vegna veðurs Fundinum lokið án niðurstöðu Kynna fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar Leita konu sem ók á konu og stakk af Metfjöldi árekstra í ófærðinni í gær og Vélfagsmenn tóku yfir fund Viðreisnar „Græna gímaldið“ fer ekki fet Gera ekki tilkall til höfuðborgartitils þótt Akureyri verði borg Hóflega bjartsýnn á viðræður dagsins Lögreglumenn hundfúlir með bruðl ríkislögreglustjóra Lögreglumenn svekktir að sjá hversu margir hundsuðu fyrirmæli í gær Skjálfti 3,2 að stærð í Mýrdalsjökli Sjá meira