Airpods 40 prósent dýrari hérlendis Atli Ísleifsson skrifar 22. september 2025 14:14 Verð var tekið í stórum keðjum og hjá Apple verslunum í hinum ýmsu löndum. Getty Airpods Pro 3 kosta 28 til 65 prósent meira á Íslandi en í átta samanburðarlöndum. Verðmunurinn er mun meiri en á nýjum iPhone símum.
Þetta kemur fram í úttekt Verðlagseftirlitsins á nýútkomnum vörum frá tæknifyrirtækinu Apple. Í tilkynningu segir að vörurnar hafi verið kynntar í byrjun september og sala á þeim hafist í liðinni viku. „Skoðað var verð á nýju iPhone línunni, tveimur hulstrum framleiddum af Apple og nýjum Airpods Pro ómvölum. Verðbilið milli íslenskra söluaðila og erlendra var minnst á símunum en mest á Airpods Pro, en hulstrin féllu þar á milli. Verð var tekið í stórum keðjum og hjá Apple verslunum í hinum ýmsu löndum. Af þeim aðilum sem skoðaðir voru var Elgiganten í Svíþjóð næst íslensku verðlagi, 7% undir íslensku verði að meðaltali. Þar kosta nýir iPhone símar svo gott sem það sama og á Íslandi. Hins vegar kosta nýjar Airpods Pro 3 ómvölur 28% meira á Íslandi en í sænska systurfyrirtæki ELKO. Verðbilið breikkar lítillega í Apple-búðinni í Danmörku og er orðið 40% sunnan landamæranna í Þýskalandi. Þó eru allir evrópsku verðpunktarnir á vörunni svipaðri innbyrðis en gagnvart Íslandi. Bandaríkin, heimaland Apple, skera sig svo úr þar líkt og í verði símanna sjálfra. Þar kosta Airpods Pro 3 ígildi rétt rúmra 30 þúsund króna. Taka þarf fram að bandarísk verð eru gefin upp án söluskatts, sem er í sumum fylkjum enginn, en getur verið yfir 10%. Alls voru 17 vörur bornar saman og 206 verðathuganir framkvæmdar. Miðað var við verð og gengi sunnudaginn 21. september,“ segir í tilkynningunni.
ASÍ Verðlag Neytendur Apple Mest lesið Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Fleiri fréttir Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Lykilþættir til staðar til að halda matvöruverði lágu Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Íslendingar aldrei verið ferðaglaðari Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Súpan með pappírnum innkölluð Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Vísar ásökunum um samráð á bug Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Grunur um listeríu í vinsælum ostum Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“