„Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 26. júlí 2025 19:14 Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi. elkem Forstjóri eina kísiljárnframleiðanda landsins segir samkeppnishæfni félagsins verða þurrkaða út ef yfirvofandi verndartollar ESB verða að veruleika. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir það grafalvarlegt ef málið var ekki rætt á fundi með forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á dögunum.
Greint var frá því í gær að Evrópusambandið hyggst leggja verndartolla á járnblendi og kísiljárn frá meðal annars Íslandi og Noregi. Formlegt samtal EES-ríkja við Evrópusambandið varðandi tollanna fer nú í hönd sem munu að óbreyttu taka gildi eftir rúmar þrjár vikur og vara í minnst 200 daga. Biðlar til stjórnvalda að beita sér gegn tollunum Elkem á Grundartanga er eini framleiðandi kísiljárns hér á landi og verður því fyrir mestum áhrifum ef tollarnir verða að veruleika. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri fyrirtækisins á Íslandi, segir um alvarlega stöðu að ræða. „Það sem að veldur okkur áhyggjum er þessi staðreynd sem við trúðum ekki fyrr en á síðustu dögum að Ísland og Noregur yrðu skilin eftir fyrir utan. Óháð því hvaða skoðun maður hefur á verndartollum þá skiptir svo miklu máli að við séum aðilar að þessum innri markaði Evrópu.“ Hún segir það skjóta skökku við að þurfa að fara eftir skilyrðum og kröfum ESB við framleiðslu, vegna EES-samningsins, án þess að njóta sömu fríðinda og þjóðir sem eru innan tollabandalags ESB. „Ég vil að Íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því að við fáum undanþágu frá þessu. Svo við séum ekki skilin eftir fyrir utan. Það segir sig náttúrulega sjálft ef að íslenskur iðnaður, hvort sem það er fyrirtækið sem ég er í forsvari fyrir eða annað. Ef þau standa fyrir utan innri markað en þurfa samt að hlíta öllum sömu kröfum og þar gilda, þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft. Auðvitað er þetta mikið áhyggjumál.“ Þjóðin sjái þetta fyrst í fjölmiðlum í Noregi Málið sé búið að vera á borði utanríkisráðuneytisins síðan í desember en var ekki til umræðu á fundi utanríkismálanefndar Alþingis á dögunum í kjölfar heimsóknar Ursulu von derLeyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sem sat umræddan fund segir það miður. „Ég verð að viðurkenna ég skil ekkert í þessu. Það er náttúrulega frábært að Ursula hafi komið núna, því þetta er svo mikið hagsmunamál fyrir okkur. Maður myndi ætla það að bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra myndu leggja höfuðáherslu á það að ræða við hana og sýna fram á hve alvarlegt þetta væri ef þetta gengur fram. Það er ekki minnst orði á þetta við utanríkismálanefnd, ekki einu. Þingmenn þar eins og þjóðin sjá þetta svo fyrst í fjölmiðlum í Noregi.“ Hann segir umrædda verndartolla vera óskiljanlega. „Þetta eru svakalega kaldar kveðjur frá Evrópusambandinu til Íslendinga og Norðmanna. Þetta er skammsýni. Þvert á það sem að okkar samningur með EES hefur gengið út á í áratugi. Þetta mun hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar. Svo sannarlega hér á Íslandi og mun þetta snerta fjölda fjölskyldna.“ Hann vonar að Evrópusinnar noti ekki umrædda tolla sem rök fyrir því að Íslands gangi í Evrópusambandið og þar með inn í tollabandalagið. „Það gætir enginn okkar hagsmuna nema við sjálf og það þarf sérstaklega að gæta hagsmuna okkar gagnvart Evrópusambandinu og það þekki ég sjálfur eftir að hafa verið utanríkisráðherra í fimm ár. Auðvitað hefur maður áhyggjur af því að Evrópusambandið sem vill fá okkur inn, þau vilja fá fjármagnið okkar og auðlindirnar okkar. Að þau séu að reyna nýta þetta til að knýja Ísland og Noreg inn í Evrópusambandið. Ég vona að það sé ekki. Ég vona að íslenskir ESB-sinnar muni ekki fara niður þann stíg að reyna nota þetta til að hræða okkur.“
Evrópusambandið Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir orð ráðherra á fundi utanríkismálanefndar staðfesta allt sem stjórnarandstaðan hafi óttast. Hann segir forsætisráðherra ganga á bak orða sinna. 21. júlí 2025 18:30 „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Boðað hefur verið til fundar í utanríkismálanefnd Alþingis á mánudaginn eftir ósk stjórnarandstöðunnar þar um. Formaður Miðflokksins telur fundinn leikrit og segir allar aðgerðir ráðamanna snúast um að troða Íslandi inn í ESB. 19. júlí 2025 19:17 Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra furðar sig á ummælum meðlima stjórnarandstöðunnar um að heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í síðustu viku hafi verið liður í því að láta þjóðina ganga inn í Evrópusambandið. 21. júlí 2025 20:06 Mest lesið Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Innlent Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Innlent Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Strætó enn á eftir áætlun en opnun hringvegarins í vinnslu Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Ríkislögreglustjóra sagt að endurskoða reksturinn og allt á floti í hlákunni Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Bein útsending: Langvinn einkenni Covid Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Hringvegurinn opinn á ný Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Sjá meira
Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir orð ráðherra á fundi utanríkismálanefndar staðfesta allt sem stjórnarandstaðan hafi óttast. Hann segir forsætisráðherra ganga á bak orða sinna. 21. júlí 2025 18:30
„Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Boðað hefur verið til fundar í utanríkismálanefnd Alþingis á mánudaginn eftir ósk stjórnarandstöðunnar þar um. Formaður Miðflokksins telur fundinn leikrit og segir allar aðgerðir ráðamanna snúast um að troða Íslandi inn í ESB. 19. júlí 2025 19:17
Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra furðar sig á ummælum meðlima stjórnarandstöðunnar um að heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í síðustu viku hafi verið liður í því að láta þjóðina ganga inn í Evrópusambandið. 21. júlí 2025 20:06