Innlent

Al­var­leg líkams­á­rás í Reykja­nes­bæ

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einstaklingurinn verður úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Einstaklingurinn verður úrskurðaður í gæsluvarðhald. vísir/vilhelm

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einn einstakling eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Fórnarlambið var með alvarlega stunguáverka og er á sjúkrahúsi. Einstaklingurinn verður úrskurðaður í gæsluvarðhald.

„Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu kl. 22:16 í gærkvöldi um alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Þegar lögreglumenn komu á vettvang ásamt sjúkraliði var ljóst að viðkomandi var með alvarlega stunguáverka og því fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur,“ segir í tilkynningu á heimasíðu lögreglunnar.

Lögregla hóf strax leit og fannst einstaklingurinn á höfuðborgarsvæðinu fljótlega eftir miðnætti. Einstaklingurinn verður úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag.

„Vegna alvarleika málsins og rannsóknarhagsmuna, mun lögreglan fara fram á gæsluvarðhald yfir árásaraðila í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×