Uppgjörið: KR - Vestri 2-1 | Atlarnir stálu sigrinum af Vestra Ólafur Þór Jónsson skrifar 1. júní 2025 16:44 Atli Sigurjónsson kom inn af bekknum og lagði upp sigurmarkið eftir að Eiður Gauti hafði jafnað metin. vísir / jón gautur KR tók á móti Vestra í 10. umferð Bestu deildar karla á Avis vellinum í Laugardalnum í dag. Fyrir leikinn var KR í 9. sæti deildarinnar og höfðu tapað þremur leikjum í röð. Á sama tíma er Vestri á hinum enda vallarins í 2. sæti með 16 stig og komið verulega á óvart. Fyrirfram var mikið rætt um að ólík fótboltalið væru að mætast. KR með Óskar Hrafn í brúnni sem vill spila boltanum og tekur áhættur líka og rætt hefur verið á öllum kaffistofum landsins síðustu misseri. Vestri og Davíð Smári hafa verið þekktari fyrir varfærnari nálgun með góðum árangri. Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálfleik. Vestri stýrði aðeins hraðanum og hleypti KR ekki í sinn takt þar sem mikið væri af færum og mörkum. Það var nóg af færum aftur á móti og mikið fjör. Mörkin stóðu hinsvegar aðeins á sér allt þar til á 42. Mínútu. Þá fékk Thibang Theophilius boltann á miðjunni, kom með frábæra sendingu í gegnum vörn KR þar sem Daði Berg var kominn einn gegn markverði KR. Daði sem er að springa úr sjálfstrausti þessa dagana gerði sér lítið fyrir og komst framhjá Halldóri í markinu og lagði boltann því í autt mark KR. Vestri leiddi því í hálfleiknum og bæði lið þurftu að endurhugsa leikplanið í seinni hálfleik. Það var akkurat það sem gerðist, Vestri féll ennþá aftar á völlinn og mynduðu algjöran varnarmúr. KR voru hægir og fyrirsjaánlegir í sínum sóknaraðgerðum þegar þeir þurftu nauðsynlega á marki að halda. Múrinn féll á 77. mínútu þegar Atli Sigurjónsson átti frábæra fyrirgjöf frá vinstri á fjærstönguna. Þar var Atli Hrafn sem setti boltann fyrir markið þar sem Eiður Gauti lúrði og setti boltann í markið af stuttu færi. Staðan jöfn og allt gat gerst. Atlarnir sem komu inná sem varamenn á 70 mínútu innsigluðu svo sigurinn á 88. Mínútu þegar Atli Sigurjónsson átti fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Atli Hrafn lúrði og skallaði boltann í markið. KR má því segja að hafi stolið sigrinum að lokum en Vestramenn voru værukærir síðustu tíu mínútur leiksins. Niðurstaðan 2-1 sigur KR eftir frábæran lokasprett. KR stekkur þar með uppí fimmta sæti deildarinnar og enda þar taphrinu sína. Vestri er enn í öðru sæti fyrir leiki kvöldsins en hafa nú tapað þremur leikjum í röð. Atvik leiksins Sjötugasta mínúta var tíðindamikil. Fyrst koma þeir Atli Hrafn og Atli Sigurjónsson inná hjá KR sem breyta leiknum. Vestri fer fram völlinn í beinu framhaldi og skora mark sem er dæmt af vegna rangstöðu. Það er hinsvegar ljóst að það var kolrangur dómur. Aron Þórður gerir Daða réttstæðan í markinu og því hefði markið átt að standa. Það sem gerist næst er að Atli í öðru veldi snúa leiknum og KR stelur sigrinum. Stjörnur og skúrkar Stjörnur leiksins koma úr báðum liðum. Hjá Vestra var Gunnar Jónas frábær, hann var sívinnandi í hægri bakverðinum. Daði Berg var einnig með mikil gæði í sínum aðgerðum. Hjá KR var Matthias Præst alltaf hættulegur og var allsstaðar á miðjunni. Þá verðum við að minnast á Atla Sigurjónsson sem kom inná á 70 mínútu og breytti öllu, það kom gríðarlega hætta af öllu sem hann gerði og skapaði markið. Atli Hrafn er samt maður leiksins, hann kom inná setti mark og stoðsendingu. Það var engin beinn skúrkur en Guðmundur Andri Tryggvason var týndur fyrir KR í dag. Engin hætta skapaðist í kringum hann og virtist vera sjálfstraust laus. Gustav Kjeldsen fékk líka dauðafæri um miðbik seinni hálfleiks þar sem hann hefði getað komið Vestra í 2-0 en fór ákaflega illa með færi meter frá markinu. Dómararnir Twana Ahmed og félagar hans höfðu ágætis stjórn á leik dagsins. Hinsvegar átti sér stað stórt augnablik í seinni hálfleik þar sem Daði Berg skorar löglegt mark sem var dæmt af. Einnig vildi KR fá hendi, víti í seinni hálfleik þar sem sem þeir höfðu eitthvað til síns máls. Þetta er annar leikurinn í röð sem dómari þessa leiks er í aðalhlutverki að leik loknum. Twana var mikið á milli tannana á fólki eftir frammistöðu sína í síðustu umferð og verður að teljast skrýtið að hann sé settur strax á þennan leik sem var alltaf að fara að vera erfiður viðureignar. Slæmur dagur hjá dómaratríói dagsins. Stemningin og umgjörð Vesturbæingar fjölmenntu á Avis völlinn sem þeir hafa sem sinn heimavöll en sem komið er. Það hlýtur að vera þreytandi fyrir KR að vera enn án heimavallar. Stefnan er sett á að KR völlurinn verði tilbúinn í lok júní en þeir sem hafa farið framhjá vellinum og séð nýlega vita að það er ansi langt í land. Það verður samt ekki tekið af KR að þeir gerðu vel úr þessum aðstæðum í dag. Umgjörðin var frábær og þokkalegasta stemmning. Það er Óskari Hrafni til hróss að þrátt fyrir að úrslitin standi á sér hjá KR, er hann að fá allt samfélagið til að mæta á völlinn. Það hefur ekki alltaf verið þannig í Vesturbænum. Besta deild karla Vestri KR Fótbolti Íslenski boltinn