Uppgjörið: FH - Afturelding 0-0| Markalaust í bragðdaufum leik Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 1. júní 2025 20:01 Frá leik FH á Kaplakrikavelli fyrr á tímabilinu. Vísir/Anton Brink FH frumsýndi nýjan þriðja búning í kvöld þegar liðið mætti Aftureldingu. Búningurinn er fagurblár og er til styrktar Gleym mér ei - styrktarfélags sem stendur með þeim sem missa barn á meðgöngu, í eða eftir fæðingu. Leikurinn bauð ekki upp á mikla skemmtun í fyrri hálfleiknum. Hvorugt lið náði að skapa sér einhver alvöru færi. Bæði lið fengu einhver hálffæri en ekkert sem reyndi á markverðina. Liðin fóru með markalausa stöðu inn í hálfleikinn í vægast sagt tíðandarlitlum fyrri hálfleik. FH mætti með smá kraft út í síðari hálfleikinn en hann fjaraði fljótt út og leikurinn varð aftur taktísk skák á miðjunni. Bæði Kjartan Kári Halldórsson og Elmar Kári Enesson Cogic áttu góðar tilraunir að marki í seinni hálfleiknum en markverðir liðana voru vel á verði. Bæði lið vörðust vel og skilaði það sér með markalausu jafntefli í heldur bragðdaufum leik restina. Atvik leiksins Þessi leikur bauð ekki upp á mikið fyrir augað í kvöld. Ekkert afgerandi atvik. Elmar Kári Enesson Cogic á mögulega besta skotfærið í leiknum þegar skemmtilega útfærð hornspyrna endar með skoti frá honum á mark. Annars má alveg segja að atvikið sé bara lokaflautið, að þetta hafi klárast. Stjörnur og skúrkar Axel Óskar Andrésson skallaði burt allt sem til hans kom. Mathias Rosenorn og Jökull Andrésson markverðir vörðu líka það sem á þá kom. Má segja að þetta sé varnarstig fyrir bæði lið. DómararnirVilhjálmur Alvar Þórarinsson hélt utan um flautuna í kvöld og honum til aðstoðar voru Gylfi Már Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson. Fjórði dómari sem kom inn á sem varamaður seint í leiknum var Gunnar Oddur Hafliðason.Dómgæslan var fín en ekki gallalaus. Full mikið flaut í byrjun kannski en jafnaðist út.Stemingin og umgjörðÞað er alltaf notalegt að koma í Kaplakrikann og þar varð enginn breyting á í kvöld. Fínasta mæting og umgjörðin hérna er alltaf í topp málum.ViðtölHeimir guðjónssonVísir/Anton Brink„Þetta er slakasti heimaleikurinn okkar“„Við náðum ekki að hækka tempóið. Þeir komu þannig inn í leikinn að þeir reyndu að drepa tempóið eins mikið og mögulegt var. Náðu að gera það vel og við svona reyndum að kýla það aðeins upp en gekk ekki nógu vel“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir leikinn í kvöld.„Við sköpuðum okkur góðar stöður fannst mér en kannski sendingar og ákvarðanartökur ekki alveg nógu góðar en við reyndum allt og hentum mönnum inn á og niðurstaðan er þessi“„Við höfum verið góðir hérna og þetta er slakasti heimaleikurinn okkar“ sagði Heimir.Við tekur núna tveggja vikna landleikjapása en hvernig á að nýta það frí?„Við höfum talað um það að við höfum byrjað mótið illa en orðið sterkari og sterkari eftir því sem á hefur liðið og við þurfum bara að halda áfram að vinna vel í því og vera klárir á móti Fram þegar landsleikjahléið er búið,“Magnús Már á hliðarlínunni.Vísir/Anton Brink„Tökum stigið og höldum áfram“„Mér fannst við verjast frábærlega. Frábær liðsheild hjá okkur í varnarleiknum og við lokuðum á FH-ingana, þeir fá ekki mörg færi í þessum leik“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir leikinn í kvöld. „Ég held að jafntefli sé bara nokkuð sanngjörn niðurstaða. Það var lítið um opin færi þannig séð og við tökum stigið og höldum áfram“FH kvartaði undan því að Afturelding væri að drepa tempóið í leiknum en Magnús Már sagði það þó ekki hafa verið ætlunin. „Það var nú ekki ætlunin. Við vildum koma boltanum inn í teig hjá þeim og þá þurftum við stundum að taka tíma til að taka föstu leikatriðin. Það var það eina sem við vorum að gera. Mér fannst við ekki vera að drepa tempóið, ég vildi nú hafa tempó í þessu“„Þetta er bara hluti af fótboltanum og við vildum koma boltanum inn í teig hjá þeim til að skapa urla og við gerðum það nokkrum sinnum“Magnús Már Einarsson ætlar að gefa sínum mönnum stutt frí í landsleikjapásunni sem tekur nú við næstu tvær vikur.„Strákarnir fá smá frí núna. Búið að vera mikið af leikjum bæði í Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum. Það er búið að vera talsvert álag og búið að vera mikið í gangi undanfarnar vikur þannig þeir fá smá frí núna“„Við mætum svo af fullum krafti núna fyrir næsta leik á móti Akranesi og mætum klárir í það“ sagði Magnús Már að lokum. Besta deild karla FH Afturelding