Körfubolti

„Helmingurinn af liðinu voru veikir“

Haraldur Örn Haraldsson skrifar
Davis Geks átti frábæran þrist í lok leiks.
Davis Geks átti frábæran þrist í lok leiks. Vísir/Jón Gautur

Davis Geks átti góðan leik í kvöld þegar Tindastóll vann Stjörnuna í fyrsta leik úrslitaviðureignar Bónus deildar karla. Geks átti risastóra þriggja stiga körfu sem var lykil partur af sigri Tindastóls. Hann fór yfir atvikið eftir leikinn.

„Á einhvern hátt kom boltinn til mín. Ég held það hafi verið fyrir slysni, því ég held að það var Stjörnuleikmaður sem snerti boltann. Boltinn kom hægt til mín og ég þakka guði fyrir að ég hitti úr skotinu,“ sagði Geks

Stuðningsmenn Tindastóls urðu alveg æfir eftir þetta skot og Geks fannst það æðislegt að sjá.

„Ég held að blóðþrýstingurinn hjá mér hafi skotist upp í 200. Helmingurinn af liðinu okkar var veikt í dag, menn voru að spila með hita, en sem betur fer náðum við í sigurinn. Ég vil þakka stuðningsmönnunum fyrir stuðninginn. Við erum svo þreyttir, við verðum að hvíla,“ sagði Geks, greinilega alveg dauðþreyttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×