Lífið

Frum­sýning hjá Auðunni: Langaði til að gera fal­legt náttúruklám

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
EJR61675
Mynd/Eyþór Jóns

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson einnig þekktur sem Auður hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið Stockholm Syndrome. Lagið kom út í september í fyrra og fjallar um Stokkhólmsheilkennið í samhengi við sambandsslit, ástina og hugmyndina um persónulegt frelsi og að vera tilfinningalega háður einstaklingi.

„Mig langaði að gera eitthvað fallegt náttúruklám. Við Íslendingar erum orðin svo vön fallega landslaginu okkar að við erum pínu dekruð. Ég elska Íslenska náttúru og mig langaði að hún spilaði aðalhlutverk í þessu myndbandi,” segir Auðunn.

Mynd/Eyþór Jóns

Lagið samdi hann ásamt breska tónlistarmanninum Matthew Harris, einnig þekktum sem twoswords. Með þeim í upptökum er Högni Egilsson sem spilar á píanó, en Auðunn sjálfur syngur og spilar á gítar og hljóðgervla.

Myndbandinu við Stockholm Syndrome er leikstýrt af Ágústi Elí og skotið og klippt af Eyþóri Jóns.

Mynd/Eyþór Jóns

Auðunn býr nú í Los Angeles þar sem hann starfar við lagasmíðar og upptökustjórn. Þar hefur verið nóg um að vera – í síðustu viku hitaði hann meðal annars upp fyrir hljómsveitina Social House á Peppermint Club í Beverly Hills. Þá hefur hann einnig landað aðalhlutverki í stuttmynd sem verður frumsýnd á hinum virta Tribecca Film Festival í New York í sumar.

„Eldarnir í byrjun árs settu klárlega svip á borgina. Ég er heppinn að vera í Downtown og í öruggri fjarlægð frá hættunni. Borgin er aftur farin á fullt, enda stútfull af skapandi fólki með stóra drauma. Þetta er höfuðborg hugmyndanna,“ segir hann um lífið í LA.


Tengdar fréttir

Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, er einhleypur. Þrátt fyrir að vera einn eftir í kotinu hefur hann haft nóg að gera í tónlistinni. Fyrr í dag gaf hann út lagið Peningar, peningar, peningar þar sem hann skýtur meðal annars föstum skotum að yfirvöldum um mál Yazans Tamimi, fjölfatlaðs drengs frá Palestínu.

Auður segist hafa trú á sér þrátt fyrir allt

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, segist vera kominn með nóg af samfélagsmiðlum og pressunni sem þeim fylgja. Þetta kemur fram í færslu hjá Auðunni á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.