Viðskipti erlent

Markaðir bregðast illa við tolla­hækkunum Trump

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um tollahækkanir hefur haft áhrif á markaði.
Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um tollahækkanir hefur haft áhrif á markaði. AP

Viðbúið er að ákvörðun Donald Trump, Bandaríkjaforseta um hækkaða tolla gagnvart Kína, Mexíkó og Kanada muni skekja markaði um allan heim. Hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu í dag eftir lækkanir vestanhafs í gær.

Á miðnætti hækkuðu Bandaríkin innflutningstolla um 25 prósent á vörur frá Mexíkó og Kanada. Vörur frá Kanada sem tengjast orkuframleiðslu hækka um 10 prósent.

Tíu prósent tollurinn sem Trump lagði á vörur frá Kína í febrúar hækkaði núna upp í 20 prósent. Kínverjar hafa þegar gripið til gagnaðgerða og tilkynnt að fimmtán prósent tollur verði lagður á kjúkling, hveiti, maís og bómull frá Bandaríkjunum og tíu prósent tollur á svína- og nautakjöt, ávexti, grænmeti, mjólkurvörur og fleira.

Nikkei vísitalan í Tokyo féll um 1,9 prósent í dag og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 1,6 prósent en hún rétti síðar úr kútnum.

Allir tapa

Francis Lun, fjárfestir í Hong Kong sem lengi hefur greint markaðinn segir við AP fréttastofuna að tollahækkanir Trump séu „lose-lose“ þar sem allir tapa. 

„Þetta mun einungis sundra mörkuðum og skapa glundroða út um allan heim, ekki bara hjá þessum fjórum löndum. Markaðurinn í Hong Kong brást strax illa við þessu og féll hratt við opnun í dag. Hang Seng vísitalan féll um 549 punkta en náði síðar jafnvægi. Ég held að það sé vegna þess að fólk hafi áttað sig á að Kína sé vel undirbúið undir viðskiptastríð og tollahækkun Bandaríkjana muni síður hafa áhrif á þau en Kanada og Mexíkó. Um sjötíu prósent viðskipta þeirra ríkja eru við Bandaríkin svo þau munu finna meira fyrir þessu en Kína. Viðskipti Kína við Bandaríkin nema um tuttugu prósentum af heildar-milliríkjaviðskiptum Kína. Bandaríkin munu þjást vegna þessa, sérstaklega útflytjendur landbúnaðarafurða. Ég held að afleiðingin af þessu verði sú að Kína velji frekar að kaupa landbúnaðarafurðir frá Suður-Ameríku en Bandaríkjunum,“ segir Lun.

Kína horfir til Evrópu

Til viðbótar við hærri tolla greindu stjórnvöld í Kína frá því að þau hefðu bannað ákveðnum bandarískum fyrirtækjum að eiga í viðskiptum við Kína. Þá greinir New York Times frá því að Kínverjar muni í auknum mæli horfa til Evrópu og freista þess að styrkja viðskiptatengsl við Evrópuríkin. Trump hefur boðað tollahækkanir á Evrópusambandið en óvíst er hvort það hafi áhrif á Ísland.

Búist er við viðbrögðum frá Mexíkó síðar í dag en Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir að stjórnvöld þar í landi muni bregðast við með 25 prósent tollum á fjölda vara til að byrja með og að þeir verði lagðir á enn fleiri vörur ef tollar Bandaríkjamanna verða enn í gildi eftir 21 dag. Ákvarðanir Trump munu bæði hafa áhrif á diplómatísk samskipti við viðkomandi ríki en einnig koma niður á neytendum og framleiðendum í Bandaríkjunum með hækkandi vöruverði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×