Fótbolti

Veðjaði 403 sinnum á leiki í eigin deild

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Knattspyrnumaðurinn hefur ekki verið nafngreindur í sænskum fjölmiðlum.
Knattspyrnumaðurinn hefur ekki verið nafngreindur í sænskum fjölmiðlum. Getty/Simone Arveda

Sænskur knattspyrnumaður hefur verið dæmdur í keppnisbann í næstu átján mánuði vegna veðmála sinna.

Hann hefur ekki spilað á efsta stigi í sænska boltanum en var uppvís að því að veðja 403 sinnum á leiki í hans eigin deild.

„Þetta er mjög sorglegt,“ sagði stjórnarmaður í félagi hans. Expressen segir frá.

Af þessum veðmálum voru fimm á leiki sem hann tók sjálfur þátt í en 398 veðmál á leiki sem fóru fram í sömu deild.

Knattspyrnumaðurinn veðjaði á sigur síns liðs í þeim leikjum sem hann veðjaði á. Hann sagðist við dóminn sjá mikið eftir þessu.

Félagið rifti samningnum við leikmanninn eftir að dómurinn féll.

Bannið nær yfir allar íþróttir í þessa átján mánuði ekki einungis knattspyrnuiðkun.

Leikmaðurinn vildi ekki koma undir nafni en sagði í samtali við Expressen að hann hafi aldrei reynt að hafa áhrif á gang leikja með ódrengilegum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×