Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Sindri Sverrisson skrifar 7. október 2026 09:31 Sveindís Jane Jónsdóttir heldur áfram að bæta sig og hefur verið frábær fyrir Angel City í ár. Getty/Brenton Tse Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur slegið í gegn í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta í ár á sinni annarri leiktíð vestanhafs. Einstakur hraði hennar og framfarir gera að verkum að hún gæti keppt um gullskóinn í þessari gríðarsterku deild.
Sveindís er nú mætt til Króatíu vegna leikjanna mikilvægu við Króata í fyrri umferð umspils um sæti á HM. Þar var afmælissöngurinn sunginn á fyrstu æfingu. Ísland mætir heimakonum á föstudaginn og seinni leikurinn er svo á Laugardalsvelli næsta þriðjudag þar sem hraði og hæfileikar Sveindísar fá vonandi að njóta sín. Í Bandaríkjunum spilar Sveindís í sjálfri Englaborginni með Angel City og hún fær sviðsljósið á samfélagsmiðlum félagsins þar sem Cassidy Chriest, tæknilegur aðstoðarþjálfari, fjallar um íslensku landsliðskonuna. View this post on Instagram A post shared by Angel City FC (@weareangelcity) „Hæfileiki Sveindísar til að nota hraðann til að slíta sig frá varnarmönnum, brjótast í gegnum öftustu línu og skapa færi er eitthvað sem gerir hana einstaka, sérstaklega í þessari deild. Að vera fljótur framherji veitir manni svo sannarlega forskot í sókninni því maður getur brotist í gegnum öftustu línu á miklum hraða og komið í veg fyrir að varnarliðið nái að skila sér til baka. Það hjálpar liðinu því að skapa færi mun hraðar og heldur tímaforskotinu þegar við reynum að komast að markinu,“ segir Chriest. Sveindís hefur skorað átta mörk í bandarísku deildinni í ár, eftir að hafa komið á miðju tímabili í fyrra frá Wolfsburg, og er næstmarkahæst í Angel City. Baráttan um Gullskóinn í ár er þó fyrst og fremst á milli Ashley Sanches og Barbra Banda en Sanchez er með 20 mörk og Banda 17. Í baráttu um Gullskóinn ef hún heldur svona áfram Angel City hefur verið á mikilli siglingu og fengið 17 af 21 stigi mögulegu í síðustu leikjum, með Sveindísi ávallt á sínum stað í fremstu víglínu. „Sveindís hefur skorað nokkur frábær mörk á þessu tímabili með því að nýta hraðann eða hæfileikann til að slíta sig lausa, brjótast í gegn og komast inn fyrir vörnina. En uppáhaldsmarkið mitt hjá henni í ár kom reyndar eftir hennar eigið innkast, þar sem hún náði boltanum aftur og kláraði færið frá vítateigslínunni. Sveindís hefur tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra og ef hún heldur áfram á þessari braut verður hún í baráttunni um Gullskóinn. Það er það sem gerir fótboltann í LA spennandi og heldur okkur í fremstu röð í NWSL þegar kemur að marktækifærum,“ segir Chriest.
Landslið kvenna í fótbolta Bandaríski fótboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sjá meira