Viðskipti innlent

Láta af óheimilli ríkis­að­stoð við Sorpu

Árni Sæberg skrifar
Hluti starfsemi Sorpu verður færð í hlutafélag.
Hluti starfsemi Sorpu verður færð í hlutafélag. Vísir/Vilhelm

Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að tryggja að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag sem er tekjuskattsskylt. Þannig hefur ríkið skuldbundið sig til þess að hætta ríkisaðstoð við Sorpu, sem er óheimil samkvæmt EES-samningnum.

Í fréttatilkynningu frá Eftirlitsstofnun Fríverslunarsamtaka Evrópu, ESA, segir að með ákvörðun stofnunarinnar í dag hafi skuldbinding Íslands verið staðfest og hún sé því bindandi.

Hefur hingað til verðir undanþegin tekjuskattskyldu

Í tilkynningu segir að verkefni Sorpu felist ekki eingöngu í meðhöndlun á heimilisúrgangi, af því að félagið reki einnig stórar móttöku-, förgunar- og endurvinnslustöðvar fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem Sorpa sé samvinnufélag í eigu sveitarfélaga hafi öll starfsemi félagsins hingað til verið undanþegin greiðslu tekjuskatts.

Eftir viðræður við Ísland hafi ESA lagt til nokkrar aðgerðir í nóvember 2024 til að tryggja að ríkisaðstoð til Sorpu yrði afnumin, á grundvelli tillagna sem íslensk stjórnvöld hefðu sett fram. 

Ein slík aðgerð hafi falið í sér að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu yrði færð í hlutafélag sem væri tekjuskattsskylt, með það að markmiði að jafna samkeppnisskilyrði og uppfylla ákvæði EES-samningsins.

Lofa bót og betrun fyrir 2027

Nú hafi Ísland formlega samþykkt fyrirhugaðar aðgerðir og skuldbundið sig til þess að koma þeim til framkvæmda að fullu fyrir 1. janúar 2027. ESA hafi staðfest samþykki íslenskra stjórnvalda og umrædd úrræði séu því bindandi fyrir Ísland. 

Með því að gera úrræði bindandi sé áframhaldandi ríkisaðstoð sem veitt yrði í bága við framangreind úrræði eftir 1. janúar 2027, talin ný ríkisaðstoð sem kunni að vera ósamrýmanleg EES-samningnum og háð endurheimtukröfu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×