Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Árni Sæberg skrifar 14. nóvember 2025 14:35 Árvakur er til húsa í Hádegismóum. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Árvakurs, útgefanda Morgunblaðsins, um að ákvörðun Fjölmiðlanefndar um 1,5 milljóna króna sekt yrði ógilt. Árvakur var sektaður vegna 48 dulinna viðskiptaboða á Mbl.is á rúmlega einu ári.
Málið varðaði sekt sem Fjölmiðlanefnd lagði á Árvakur í maí árið 2024 vegna viðskiptaboða sem birt voru á Mbl.is á tímabilinu janúar 2022 til febrúar 2023. Viðskiptaboðin voru í formi frétta um vörur án þess að tekið væri fram að um auglýsingu væri að ræða. Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa fengið fréttir skrifaðar um vörur sínar á Mbl.is með þeim hætti eru Nói siríus, Hagkaup, MS og Te og kaffi. Fréttirnar sem um ræðir höfðu flest allar sama brag á sér, þar sem fjallað er um vöru fyrirtækjanna á jákvæðan hátt, án þess að fréttin væri merkt sem auglýsing eða samstarf við viðkomandi fyrirtæki. Slíkar duldar auglýsingar eru bannaðar með lögum um fjölmiðla. Birt orðrétt upp úr tilkynningu Fréttirnar birtust á Smartlands- og matarvef mbl.is. Fjölmargar auglýsingar, eða 48 talsins, dulbúnar sem fréttir, voru tíndar til í ákvörðun Fjölmiðlanefndar. Má þar nefna auglýsingar fyrir nýjar vörur frá Nóa siríus, þar sem fyrirsögnin er „Nýja nammið flýgur úr hillunum“, og „Splunkunýtt súkkulaði rifið úr hillunum“. Auglýsingar þar sem umfjöllunarefnið er „besta gráðaostasósan á markaðnum í dag“ sem gerðar voru fyrir Hagkaup eru auk þess nefndar. „Ný bragðtegund af Hleðslu komin á markað“ er auglýsing sem dulbúin var sem frétt fyrir MS og „KEA skyr eins og þú hefur aldrei séð það áður“ einnig. Umfjöllun um nýtt KEA skyr frá Mjólkursamsölunni var birt orðrétt á Mbl fjórum dögum efitr að hún birtist á vef MS. Árvakur vísaði til þess í andsvörum sínum að fjölmiðill hefði tjáningarfrelsi og frelsi til að meta það sem teldist fréttnæmt. Veitan hefði auk þess ekki fengið greitt frá fyrirtækjunum, en það væri skilyrði svo að umfjöllun teldist auglýsing en ekki frétt. Fjölmiðlanefnd hafnaði þeim rökum og vísaði til þess að tilvist greiðslu eða annars endurgjalds sé ekki nauðsynleg forsenda í þessu sambandi, enda geti fjölmiðlaefni verið þessarar gerðar án þess að nokkur greiðsla komi fyrir. Þá myndi slíkt skilyrði vinna gegn banninu enda örðugt að sanna að greitt hafi verið fyrir umfjöllun. Niðurstaða Fjölmiðlanefndar var því að sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna. Fengu ekki greitt en brutu samt lögin Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 11. nóvember síðastliðinn, segir að Árvakur hafi höfðað mál á hendur Fjölmiðlanefnd og íslenska ríkinu og krafist þess að sektarákvörðunin yrði ógilt með dómi og að ríkinu yrði gert að endurgreiða sektina. Í málinu hafi virst óumdeilt að Árvakur hafi ekki fengið greitt fyrir umræddar umfjallanir frá þeim fyrirtækjum sem haft gátu hag af þeim. Það sé meðal annars stutt svörum frá fyrirtækjunum sem um ræðir. Í niðurstöðu dómsins segir að dómurinn taki undir það með Fjölmiðlanefnd að efni, eðli og framsetning á umræddum umfjöllunum hafi verið með þeim hætti að þær verði taldar þjóna auglýsingamarkmiðum án þess að vera merktar sem slíkar. Fjölmiðlaveitur beri ábyrgð á því að viðskiptaboð sem þær birta í miðlum sínum séu í samræmi við fjölmiðlalög. Stefnandi hafi meðal annars byggt á því að einfaldlega væri um að ræða fréttir um neysluvörur og nýjungar sem veki áhuga almennings. Að mati dómsins sé þó ótvírætt að framsetning á vörumerkjum umræddra fyrirtækja í umfjöllununum sé með þeim hætti að telja verði að þar sé um óheimil dulin viðskiptaboð að ræða. Breyti engu í því efni þó að ekki hafi verið sýnt fram á að endurgjald hafi komið fyrir miðlun þeirra. Því hafi í umræddri umfjöllun á Mbl.is falist brot á bannákvæði fjölmiðlala við miðlun dulinna viðskiptaboða.
Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Dómsmál Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira