Innlent

Flokkur fólksins leitar að upp­lýsinga­full­trúa

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Í starfslýsingunni segir að upplýsingafulltrúinn þurfi meðal annars að fást við greina- og ræðuskrif. Leiða má líkur að því að Inga Sæland þurfi enga hjálp með sínar ræður.
Í starfslýsingunni segir að upplýsingafulltrúinn þurfi meðal annars að fást við greina- og ræðuskrif. Leiða má líkur að því að Inga Sæland þurfi enga hjálp með sínar ræður. Vísir/Vilhelm

Flokkur fólksins hefur auglýst eftir upplýsingafulltrúa í fullt starf. Fram kemur í auglýsingunni að starfið sé spennandi og krefjandi starf í stjórnmálum sem reyni á frumkvæði, skipulag og góða samskiptahæfni.

Starfsauglýsinguna má finna á vefsíðunni alfred.is.

Þar segir að starfið feli í sér kynningu á starfsemi flokksins, fjölmiðlasamskipti, greina- og ræðuskrif, og skipulagningu viðburða og ferðalaga þingmanna.

Þá segir um flokkinn:

„Stjórnmálaflokkurinn Flokkur fólksins var stofnaður árið 2016 ... hugmyndafræði flokksins felst fyrst og fremst í félagshyggju, svo sem bættum velferðarmálum og auknum stuðningi við þá sem standa höllum fæti í samfélaginu.“

Menntunar- og hæfniskröfur eru eftirfarandi:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla þar sem reynt hefur á textaskrif, ritstjórn, yfirlestur og miðlun efnis.
  • Reynsla af fjölmiðlastörfum eða samskiptum við fjölmiðla er kostur.
  • Þekking og reynsla af uppsetningu efnis á myndrænan hátt er kostur.
  • Þekking og reynsla af forritum eins og Canva eða Photoshop er kostur.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
  • Reynsla af notkun vefumsjónarkerfa líkt og wordpress er kostur.
  • Reynsla af gerð fréttabréfa og notkun forrita líkt og mailchimp er kostur.
  • Metnaður og vilji til að ná árangri.
  • Skipulagsfærni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Gengið hefur á ýmsu hjá Flokki fólksins undanfarna daga, en í síðustu viku var greint frá því að flokkurinn uppfylli ekki skilyrði fyrir úthlutun fjárstyrkja til stjórnmálaflokka, en hefði samt sem áður þegið 240 milljónir króna úr ríkissjóði.

Þá var greint frá því í gær að Inga Sæland hefði hringt í skólastjóra Borgarholtsskóla og minnt hann á ítök hennar í lögreglunni, þegar hún hellti sér yfir hann vegna týnds skópars barnabarns hennar.

Sjá einnig: Ráðherra hringdi í skólastjóra vegna týnds skópars


Tengdar fréttir

„Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, svarar gagnrýni Diljár Mistar Einarsdóttur og annarra fullum hálsi og sakar „óvandaða falsfréttamiðla í eigu auðmanna og ákveðinna stjórnmálaafla“ um að koma fram við fólk eins og fífl.

Þáðu líka styrk án réttrar skráningar

Fleiri stjórnmálaflokkar en Flokkur fólksins hafa þegið framlög úr ríkissjóði án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Til að mynda þáði Sjálfstæðisflokkurinn 167 milljónir króna árið 2022, rétt áður en skráningu flokksins var breytt.

Hvat­vísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir hvatvísina hafa verið við völd þegar hún tók upp tólið og hringdi, sem amma, í skólameistara Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns síns. Hún segist ætla að gera betur og biðst afsökunar á því að hafa hringt þetta símtal. Ábyrgð hennar sé mikil í dag sem ráðherra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×