Innlent

Pawel stýrir utan­ríkis­mála­nefnd

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Pawel Bartoszek sat á þingi fyrir Viðreisn 2016 - 2017 og tók sæti á nýjan leik í fyrra.
Pawel Bartoszek sat á þingi fyrir Viðreisn 2016 - 2017 og tók sæti á nýjan leik í fyrra. Vísir/Vilhelm

Pawel Bartoszek verður tilnefndur til formennsku í utanríkismálanefnd Alþingis þegar þing kemur saman. Skipan í fastanefndir þingsins er langt komin en þing kemur saman þriðjudaginn 4. febrúar næstkomandi.

Pawel greindi frá því í færslu á Facebook að á þingflokksfundi Viðreisnar hefði verið greint frá tilnefningu hans til setu í utanríkismálanefnd sem formaður nefndarinnar.

Þingflokkarnir hafa náð samkomulagi í meginatriðum um setu þingmanna í fastanefndunum á komandi Alþingi.

Samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins fær Flokkur fólksins þrjá formannsstóla, í fjárlaganefnd, atvinnuveganefnd og velferðarnefnd. Sigurjón Þórðarson verði formaður atvinnuveganefndar og Guðmundur Ingi Kristinsson formaður velferðarnefndar.

Áður hafði komið fram að Ragnar Þór Ingólfsson verði formaður fjárlaganefndar.

Auk utanríkisnefndarinnar fái Viðreisn formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd, þar sem Guðbrandur Einarsson taki sæti formanns.

Samfylkingin fær formennsku í tveimur nefndum, allsherjar- og menntamálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd.

Víðir Reynisson kemur til með að stýra allsherjar- og menntamálefnd, og Arna Lára Jónsdóttir mun stýra efnahgas- og viðskiptanefnd.

Þá liggur ekki fyrir hver muni stýra stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, en venju samkvæmt verður það þingmaður úr stjórnarandstöðunni.


Tengdar fréttir

Nefndir þingsins að taka á sig mynd

Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins í Reykjavík og fyrrverandi formaður VR, verður formaður fjárlaganefndar. Þetta herma heimildir fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×