Viðskipti innlent

Norska sjóbjörgunarsveitin semur við ís­lenskt fyrir­tæki

Jón Þór Stefánsson skrifar
Redningsselskapet mun notast við tækni frá Hefring Marine.
Redningsselskapet mun notast við tækni frá Hefring Marine. Hefring Marine

Hefring Marine, íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun snjallsiglingartækja undirritaði í gær samning við norsku sjóbjörgunarsveitina, Redningsselskapet.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, en þar segir að norska sveitin muni koma til með að nota kerfi Hefring í öllum flota þeirra í Noregi.

„Við erum mjög stolt af samstarfi okkar við Redningsselskapet,“ er haft eftir Karli Birgi Björnssyni, forstjóra Hefring Marine.

Í tilkynningunni kemur fram að snjallsiglingatækni fyrirtækisins, sem er fyrir báta og skip, notist við gervigreind, gögn úr skynjurum og önnur tölvugögn til að mynda til þess að auka öryggi og spara eldsneyti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×