Handbolti

Stað­festa 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum

Sindri Sverrisson skrifar
Magnús Stefánsson og hans menn í ÍBV eru komnir áfram í Powerade-bikarnum eftir sigur á tveimur dómstigum.
Magnús Stefánsson og hans menn í ÍBV eru komnir áfram í Powerade-bikarnum eftir sigur á tveimur dómstigum. vísir/Diego

Í dag, rúmum mánuði eftir umdeildan bikarleik Hauka og ÍBV, er orðið endanlega ljóst að Eyjamenn fá dæmdan 10-0 sigur í leiknum og spila því gegn FH í 8-liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta.

Þettta er niðurstaðan eftir dóm Áfrýjunardómstóls HSÍ sem Vísir hefur undir höndum.

Haukar unnu leikinn 37-29, 17. nóvember en Eyjamenn kröfðust 10-0 sigurs vegna brots Hauka á nýrri reglu, sem fast hefur verið fylgt eftir, um að ekki megi breyta leikskýrslu innan við 60 mínútum fyrir leik.

Fulltrúar beggja liða mættu á svokallaðan „tæknifund“ með eftirlitsmanni leiksins, sem Haukar segja að hafi hafist seinna en ella vegna þess að eftirlitsmaður hafi mætt seint auk þess sem fulltrúi ÍBV hafi vikið af fundinum um tíma, áður en eftirlitsmaður mætti.

Allir voru þó mættir rétt rúmum klukkutíma fyrir leik og voru leikskýrslur slegnar tímanlega inn í „HB ritara“, tölvukerfið sem notað er til að fylla út skýrslur.

Illa gekk hins vegar að prenta út skýrslu til yfirferðar. Þegar það hafðist var minna en klukkutími til leiks. Fulltrúi Hauka tók þá eftir því að nafn Helga Marinós Kristóferssonar var á skýrslunni en þar átti Andri Fannar Elísson að vera í hans stað.

Fulltrúi Hauka breytti því skýrslunni en eftirlitsmaður HSÍ sagðist þá þurfa að geta þess í skýrslu um leikinn.

ÍBV ákvað í kjölfarið að kæra framkvæmd leiksins og dæmdi dómstóll HSÍ Eyjamönnum í hag í síðasta mánuði.

Haukar áfrýjuðu þeim dómi til Áfrýjunardómstóls HSÍ sem nú hefur komist að sömu niðurstöðu og segir meðal annars:

...Gögn bera þó með sér að skýrslunni var breytt þegar innan við 60 mínútur voru til leiks, eða eftir að tímamark til breytinga var liðið.

Að þeirri niðurstöðu fenginni þjóna vangaveltur um hvort breyting hafi verið samþykkt af stefnda hér fyri rdómi (kæranda fyrir dómstóli HSÍ), eftirlismaður fallist á eða gert athugasemd við breytingu, engum tilgangi. Reglan er fortakslaus og breyting verður ekki gerð á leikskýrslu síðustu 60 mínútur fyrir leik.

Ljóst er að Haukar eru afar óánægðir með niðurstöðuna eins og fram kom í máli Andra Más Ólafssonar, formanns handknattleiksdeildar Hauka, við Vísi eftir að dómur Dómstóls HSÍ var birtur 27. nóvember.

„Þetta er mjög sérstakt. Maður veltir fyrir sér hvert við séum komin sem hreyfing ef að þetta á að vera niðurstaðan. Ég hefði haldið að maður myndi vilja vinna leikinn á parketinu en ekki á einhverjum tæknilegum tiktúrum eða öðru,“ sagði Andri og fullyrti að ýmislegt sem fram kæmi í dómnum væri ekki sannleikanum samkvæmt.

Þrjú lið eru komin áfram í undanúrslit Powerade-bikars karla, eftir leiki í vikunni, en það eru Stjarnan, Afturelding og Fram. Óvíst er hvenær leikur ÍBV og FH verður spilaður en honum var frestað vegna óvissunnar um dóminn. Sá leikur mun fara fram í Vestmannaeyjum. Undanúrslitin eru svo 26. febrúar.


Tengdar fréttir

Bikarleik frestað vegna óútkljáðs kærumáls Hauka og ÍBV

Mótanefnd HSÍ hefur frestað leik ÍBV og FH í átta liða úrslitum Powerade bikars karla í handbolta vegna þess að enn er ekki komin niðurstaða í kærumál Hauka og ÍBV. Ekki liggur fyrir hvenær leikurinn fer fram en það gæti ekki verið fyrr en í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×