Heimsmeistararnir unnu heimakonur og sendu þær í leik á móti Noregi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2024 18:32 Pauletta Foppa skoraði fimm mörk fyrir franska liðið í kvöld en Frakkarnir hafa unnið alla leiki sína á mótinu til þessa. Getty/David Damnjanovic Heimsmeistarar Frakka og Ólympíumeistarar Norðmanna mætast ekki fyrr en í fyrsta lagi í úrslitaleiknum á Evrópumóti kvenna í handbolta.
Þetta er ljóst eftir að Frakkar unnu þriggja marka sigur á Ungverjum, 30-27, í óopinberum úrslitaleik um efsta sætið í milliriðli eitt. Bæði Frakkland og heimaliðið Ungvejarland voru búin að vinna alla leiki sína til þessa í mótinu og höfðu því þegar tryggt sig áfram í leikina um verðlaun. Norðmenn eru búnir að tryggja sér sigurinn í milliriðli tvö og þær norsku mæta því Ungverjum í undanúrslitaleiknum. Frakkar mæta annað hvort Danmörku eða Hollandi í sínum undanúrslitaleik en þau lið spila hreinan úrslitaleik um síðasta sætið í undanúrslitin á morgun. Frakkar skoruðu fjögur fyrstu mörkin í leiknum á móti Ungverjum, komust í 5-1 og 10-6 en í hálfleik var staðan orðin jöfn, 13-13. Þær frönsku skoruðu þrjú fyrstu mörkin í seinni hálfleik og voru með frumkvæðið eftir það. Það munaði tveimur mörkum, 24-22, á lokakaflanum en þá slitu þær frönsku sig endalega frá ungverska liðinu. Markaskor franska liðsins dreifðist mikið eins og vanalega en Pauletta Foppa og Chloé Valentini voru markahæstar með fimm mörk. Pólverjar unnu 29-24 sigur á Rúmenum í fyrsta leik dagsins en bæði liðin eru með tvö stig eins og Svíþjóð.
EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira