Wirtz sé búinn að missa trúna Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 12:45 Þjóðverjinn Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, óttast að landi sinn Wirtz muni aldrei slá í gegn hjá félaginu. Samsett/Getty Þjóðverjinn Dietmar Hamann, fyrrverandi leikmaður Liverpool, heldur því fram að Florian Wirtz hafi ekki lengur trú á því að hann geti slegið í gegn hjá félaginu eftir erfitt fyrsta tímabil í Bítlaborginni.
Wirtz tókst ekki að standa undir 125 milljóna punda verðmiðanum eftir að hann kom frá Bayer Leverkusen síðasta sumar, en lið Arne Slot var langt frá því að verja Englandsmeistaratitilinn. Þessi 23 ára gamli sóknartengiliður skoraði sjö mörk og lagði upp átta í 49 leikjum á fyrsta ári sínu á Englandi, en frammistaða hans hefur sætt vaxandi gagnrýni bæði á Englandi og í heimalandinu. Þjóðverjinn hefur aðeins lagt upp eitt mark og ekkert skorað í sex leikjum undir stjórn nýja knattspyrnustjórans Andoni Iraola en var þó einhverju betri í nýliðnum landsliðsglugga með þýska landsliðinu undir stjórn Jurgen Klopp. Hamann telur að Wirtz sé ekki ánægður hjá Liverpool og gefur í skyn að landi hans hafi misst trúna á að hann geti snúið gæfunni sér í hag á Englandi. Wirtz sjái jafnvel eftir því að hafa farið í ensku úrvalsdeildina. „Ég veit ekki hvort hann trúir því enn að hann geti slegið í gegn,“ sagði fyrrverandi miðjumaður Liverpool við Sky í Þýskalandi. „Þegar ég sé hann spila fyrir Liverpool fæ ég oft á tilfinninguna að hann sé ekki ánægður. Þetta er leikmaður sem býr yfir gleði; maður sá það í hverri einustu snertingu. Hann spilaði eins og barn á vellinum, hann naut þess einfaldlega að spila fótbolta,“ segir Hamann. „En ég hef ekki séð það hjá honum mánuðum saman, og ég veit ekki hvort hann hefur enn þessa trú til að segja: Ég mun snúa þessu við. Því auðvitað verður gagnrýnin meiri með hverjum leik og hverri viku, og trúin eða sú hugsun að hann segi: Nei, ég mun ná mínu fram, gæti dvínað örlítið,“ „Ég veit ekki hvort hann hefur það enn. Mér sýnist það ekki eins og staðan er núna,“ segir Hamann.
Liverpool FC Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira