Skoðun

Kleppur er víða

Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir skrifar

„Það er ekkert heilbrigðara í þessu samfélagi en vel stæður tannlæknir á jeppa“, sagði Páll svo eftirminnilega í meistaraverkinu Englum Alheimsins. Líkt og tannlæknirinn lít ég út fyrir að vera ósköp venjulegur samfélagsþegn, sem mætir í vinnuna og á sér fínasta félagslíf. Það sem ég ber hins vegar ekki utan á mér er að ég hef glímt við krónískt þunglyndi nánast frá því ég man eftir því. Líkt og aðrir geðsjúkdómar er þunglyndi margslungið og mjög einstaklingsbundið hvað veldur því, hvernig það leggst á fólk og hvernig er best að meðhöndla það. Á góðum dögum hugsa ég jafnvel ekkert um það, en í verstu köstunum kemst ég ekki einu sinni fram úr rúminu, jafnvel dögum saman. Það getur verið erfitt að skilja fyrir fólk sem hefur aldrei upplifað það, en þunglyndið leggst á mann eins og mara, oft án fyrirvara, og fyllir heilann þoku með ranghugmyndum um algert tilgangsleysi alls. Þetta er hræðileg tilvera.

Ég greindist rétt komin á unglingsár og hef verið á lyfjum nánast óslitið síðan. Heilinn í mér framleiðir einfaldlega ekki næg gleðihormón til að koma mér í gegnum daginn án þeirra. Þunglyndislyf eru fyrir mig eins og insúlín fyrir sykursjúka. Lyf duga þó ekki ein og sér, heldur er í flestum tilfellum nauðsynlegt að leita leiðsagnar fagaðila, hvort sem það er sálfræðingur, þerapisti eða annar sérfróður aðili. Þar sem ég greindist snemma á lífsleiðinni var ég svo heppin að geta nýtt mér þjónustu geðlækna og sálfræðinga hjá hinu opinbera. Eftir að komið var á fullorðinsár blasti þó við önnur staða. Margra mánaða biðlistar í opinbera kerfinu eða einkageirinn þar sem hver tími hjá sálfræðingi kostar rúmlega 20.000 kr. Það gefur auga leið að það er ekki á færi allra.

Opinbera kerfið forgangsraðar þeim sem eru hvað veikust fyrir, sem skilur eftir stóran hóp fólks sem þjáist í hljóði en er ekki „nægilega“ veikt til að eiga inni hjá geðlækni. Fólk er misjafnt eins og það er margt og það er nauðsynlegt að bjóða upp á fjölbreytt úrræði, tryggja aðgengi allra að vandaðri opinberri þjónustu, sem og að frjálsum félagasamtökum sem hafa unnið ötult og mikilvægt starf í þágu geðheilbrigðismála.

Rannsóknir Landlæknis benda til þess að landsmönnum líður æ verr, sérstaklega ungu fólki. Það geta öll lent í því að veikjast á geði einhvern tímann á lífsleiðinni, líka vel stæðir tannlæknar á jeppa. Þegar það kemur fyrir þig, eða einhvern nákominn, viltu hafa flokka í brúnni sem grípa utan um þig og þína áður en sjúkdómurinn versnar eða verður jafnvel lífshættulegur. Kerfi sem tekur utan um þig og hjálpar þér í leit að bata og jafnvægi.

Píratar setja geðheilbrigðismál í forgang á næsta kjörtímabili. Þess vegna mun ég kjósa Pírata, fyrir heilbrigðara samfélag fyrir okkur öll.

Höfundur er lögfræðingur og frambjóðandi Pírata í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×