Innlent

Tvær á toppnum

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Flestir myndu vilja fá Kristrúnu Frostadóttur sem næsta forsætisráðherra og langflestir myndur vildu helst sjá hana í stól fjármála-og efnahagsráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fylgir fast á hæla hennar og fær næst mest fylgi sem næsti leiðtogi ríkisstjórnarinnar.
Flestir myndu vilja fá Kristrúnu Frostadóttur sem næsta forsætisráðherra og langflestir myndur vildu helst sjá hana í stól fjármála-og efnahagsráðherra. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fylgir fast á hæla hennar og fær næst mest fylgi sem næsti leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Vísir

Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu þar sem fólk var spurt hverja af leiðtogum flokkanna það telji að væri besti forsætisráðherrann og besti fjármála- og efnahagsráðherrann.

Enn vilja flestir formann Samfylkingar sem leiðtoga næstu ríkisstjórnar

Flestir telja að  Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar yrði besti forsætisráðherrann eða um 27 prósent svarenda. Það eru aðeins færri en í könnun frá því í október þar sem tæpur þriðjungur taldi hana besta kostinn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er í öðru sæti með um 21 prósent.  Athygli vekur að tvöfalt fleiri en í síðustu könnun telja hana besta forsætisráðherrann. 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er í þriðja sæti en fylgi við hann sem forsætisráðherra dalar milli kannanna. Það sama á við formenn ríkisstjórnarflokkanna sem missa allir fylgi við sig milli kannanna sem leiðtoga í næstu ríkisstjórn. Athygli vekur að Sanna Magðalena Mörtudóttir  leiðtogi sósíalista kemst nú á blað þar sem tæplega fimm prósent svarenda velja hana sem næsta forsætisráðherra.

Ný könnun Maskínu sýnir hverjum þátttakendur treysta best til að gegna embætti forsætisráðherra.Vísir

Formaður Viðreisnar kominn yfir formann Sjálfstæðisflokksins

Langflestir eða fjórir af hverjum tíu telja Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingar besta fjármála- og efnahagsráðherrann og bætir hún talsvert við sig frá síðustu könnun fyrir tveimur árum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er í öðru sæti og bætir hún einnig talsvert við sig. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er nú í þriðja sæti en hann tapar umtalsverðu fylgi milli kannanna. Nú  telja um 14 prósent svarenda hann vera besta kostinn í stól fjármálaráðherra en voru um 24 prósent fyrir tveimur árum.

Svona svaraði fólk því hver það teldi að yrði besti fjármála- og efnahagsráðherrann.Vísir

Formaður Miðflokksins er í fjórða sæti þar sem um einn af hverjum tíu telja hann besta kostinn og tvöfaldar hann fylgi sitt sem fjármála-og efnahagsráðherra milli kannanna. Ríflega fimm prósent telja núverandi fjármálaráðherra henta best í stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×