Innlent

Ný gögn í Geir­finnsmáli eigi að fara til lög­reglu á Suður­nesjum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu Aðsend

Jón H.B. Snorrason saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir best að byrja hjá lögreglu sé fólk með vitnisburð eða gögn sem geti varpað nýju ljósi á rannsókn lögreglu í einhverju máli. Útgefandi bókar um hvarf Geirfinns Einarssonar geti snúið sér til lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Hvort sem það byrjar með því að einhver snýr sér til lögreglu og vill kæra eða lögregla fær upplýsingar eða byrjar rannsókn. Það er hin hefðbundna leið. Mál byrja hjá lögreglu. Sá sem hefur upplýsingar eða gögn snýr sér þangað,“ sagði Jón í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Tilefni viðtalsins var fullyrðing Jóns Ármanns Steinssonar, útgefanda bókarinnar Leitin að Geirfinni, í samtali við Reykjavík síðdegis í gær um að útgefandi og höfundur bókarinnar hafi komið að luktum dyrum hjá lögreglu og saksóknara með nýjar vísbendingar í máli Geirfinns Einarssonar sem gekk út af heimili sínu og hvarf í Keflavík þann 19. nóvember 1974.

Jón sagði í viðtali í gær að það væri enginn áhugi hjá yfirvöldum að leysa málið.

„Ég hef talað við mjög marga í kerfinu og ég fæ alls staðar sama svarið: Æ æ, miðað við kerfið getum við ekki tekið við þessu hjá þér. Þetta er allt frá lögreglu yfir í saksóknara, ráðuneytisfólk. Allir sem ég tala við, fullur skilningur og full samúð en hvaða feril á þetta að fara í? Þetta er lokað sakamál,“ sagði Jón í viðtali við Reykjavík síðdegis í gær.

Jón H.B. segir að miðað við það sem kom fram í viðtali við Jón Ármann í gær sé um að ræða gagnaupplýsingar og séu menn með slíkar upplýsingar sé best að koma þeim áleiðis til Lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Það væri eðlilegt upphaf. Með hefðbundnum hætti.“

Óleyst og ófyrnt

Jón H. B. segist ekki hafa heyrt af þessum upplýsingum áður en fjallað var um þær í fjölmiðlum í gær. Málið sé enn óleyst og ófyrnt og því enn viðfangsefni lögreglunnar ef eitthvað kemur upp.

Hann segir það eins og óleyst mál enn opið og til þess að það sé tekið upp aftur þurfi einhver ný sönnunargögn eða nýjan vitnisburð sem varpi ljósi á málið.

„Það er nægjanlegt til að hefja rannsókn,“ segir Jón H.B. en að hann treysti sér ekki til að meta hvort þau gögn sem talað er um í bókinni nægi til þess að það verði gert. Það verði verkefni lögreglunnar sem tekur við gögnunum.

Hann segir enga sérstaka deild hjá lögreglu taka við gömlum málum. Öll mál eigi að fara í sama farveg, sama hversu gömul þau eru.


Tengdar fréttir

„Við erum bara að tala um eina Erlu Bolladóttur og hún kom okkur í fangelsi“

Magnús Leópoldsson, sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaður um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana, segist í áfalli yfir þeim tíðindum að forsætisráðherra hafi ákveðið að greiða Erlu Bolladóttur 32 milljónir króna í miskabætur. Erla sat í gæsluvarðhaldi í 232 daga við rannsókn sama máls.

Alberti Klahn dæmdar 26 milljónir í bætur

Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða Alberti Klahn Skaftasyni, sakborningi í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum, 26 milljónir króna í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×